
Ásmundur Helgason hefur verið skipaður forseti Félagsdóms, en hann gegndi áður embætti varaforseta dómsins. Breytingarnar koma í kjölfar þess að Ásgerður Ragnarsdóttir, fráfarandi forseti, lét af störfum til að taka við embætti dómara við Hæstarétt þann 1. september síðastliðinn.
Samhliða þessu verður Björn L. Bergsson nýr varaforseti Félagsdóms, en hann var áður dómari við dóminn. Þá hefur Hólmfríður Grímsdóttir verið skipuð nýr dómari.
Félags- og húsnæðismálaráðherra skipaði dómarana í samræmi við tilnefningu Hæstaréttar. Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur tilnefnir Hæstiréttur þrjá dómara til Félagsdóms, þar á meðal forseta og varaforseta, og eru þeir skipaðir ótímabundið.
