1
Fólk

Ældi eftir Vikuna með Gísla Marteini

2
Fólk

Höllin lækkuð um 45 milljónir

3
Heimur

14 látnir eftir flugslys

4
Pólitík

Færsla Jóns Péturs um ungar konur vekur úlfúð

5
Innlent

Innkalla núðlur vegna aðskotaefna

6
Fólk

Huginn Þór tekinn til gjaldþrotaskipta

7
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

8
Heimur

Fékk líkamsleifar eiginmannsins og sonar í skókössum

9
Minning

Edda minnist Björgvins Halldórssonar

10
Innlent

Innkalla sveppi vegna listeríu

Til baka

Bergur segir útköll sjúkraflutningsmanna kalla á mikla nærgætni

„Við förum í ótal útköll sem tengjast andlegri vanlíðan.“

Bergur Vilhjálmsson
Bergur Vilhjálmsson er slökkviliðs- og sjúkraflutningamaðurHefur gengið í gegnum margt á starfsævinni
Mynd: Skjáskot/YouTube

Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, segist sjá það í störfum sínum að það hafi aldrei verið mikilvægara að vekja athygli á andlegri vanlíðan fólks. Bergur, sem er nýjasti gesturinn í hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar, segist margoft fara í útköll vegna sjálfsvíga og það færist í vöxt.

„Við förum í ótal útköll sem tengjast andlegri vanlíðan og oft kemur í ljós að fólk vissi ekki einu sinni af Píeta-samtökunum. Það var eitt af því sem fékk mig til að gera þessa hluti og ákveða að gefa af mér til þessarra samtaka. Þessi verkefni eru alltaf að færast í vöxt hjá okkur og það er alltaf verið að gefa okkur betri tól til að eiga við þessi útköll. Stundum kallar lögreglan á okkur, en stundum köllum við á lögregluna. En við förum í allar þessar aðstæður. Ég hef komið að manneskju sem er nýbúin að hengja sig, manneskju sem er nýbúin að skjóta sig og fleira í þeim dúr. Við getum átt von á því að þurfa að mæta í alls konar aðstæður í okkar störfum,“ segir Bergur, og nefnir að það geti tekið mikið á að þurfa að mæta í aðstæður sem þessar.

„Við fáum undirbúning undir þetta og lærum ákveðna verkferla. Maður veit við hvað maður vinnur og veit hverju maður getur átt von á. Fólk er mjög fljótt að sjá hvort það geti unnið þessi störf og hvort það sé yfir höfuð fyrir þig að geta þurft að mæta svona aðstæðum. Ég get bara talað fyrir sjálfan mig, en maður hugsar mjög oft á leiðinni í vinnuna: „Hvað ætli gerist í dag?“ og þá er maður á ákveðinn hátt búinn undir það í undirmeðvitundinni. Þegar maður var að byrja var maður oft mjög kvíðinn, en svo öðlast maður reynslu og verður færari í að takast á við ólíkar aðstæður. Mikið af þeim útköllum sem við förum í kalla á mikla nærgætni. Þegar fólk hringir á sjúkrabíl er það yfirleitt ekki venjulegur dagur og fólk oft í miklu uppnámi, líka aðstandendur og fólkið í kringum þann sem þarf á hjálp að halda.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

Hann játaði brot sín
Fæðingartíðni í sögulegu lágmarki í Þýskalandi
Heimur

Fæðingartíðni í sögulegu lágmarki í Þýskalandi

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli
Innlent

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli

Össur hæðist að færslu Jóns Péturs
Pólitík

Össur hæðist að færslu Jóns Péturs

Sameinuðu arabísku furstadæmin segja sig úr OPEC
Heimur

Sameinuðu arabísku furstadæmin segja sig úr OPEC

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump
Innlent

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump

Krónprins Noregs einnig sagður tengjast Epstein
Heimur

Krónprins Noregs einnig sagður tengjast Epstein

Jarðneskar leifar Ashlee Jenae afhentar fjölskyldu hennar
Heimur

Jarðneskar leifar Ashlee Jenae afhentar fjölskyldu hennar

Stjórnandi tæknirisa drukknaði í Volguá
Heimur

Stjórnandi tæknirisa drukknaði í Volguá

Innkalla sveppi vegna listeríu
Innlent

Innkalla sveppi vegna listeríu

Hvetur Sjálfstæðisflokkinn til að hafna „þvælu“ Jóns Péturs
Pólitík

Hvetur Sjálfstæðisflokkinn til að hafna „þvælu“ Jóns Péturs

Sigmundur Davíð ósáttur við samstarf fjölmiðla
Pólitík

Sigmundur Davíð ósáttur við samstarf fjölmiðla

Þýskur ferðamaður látinn eftir bit
Heimur

Þýskur ferðamaður látinn eftir bit

Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra
Innlent

Sigmundur dæmdur fyrir „ósiðlegt og lostugt athæfi“ utandyra

Hann játaði brot sín
Réttarhöld vegna Múlaborgarmálsins hefjast í dag
Innlent

Réttarhöld vegna Múlaborgarmálsins hefjast í dag

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli
Innlent

Kýldi mann ítrekað í andlitið með lykli

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump
Innlent

Arnar Þór varpar fram samsæriskenningu um skotárásina á Trump

Innkalla sveppi vegna listeríu
Innlent

Innkalla sveppi vegna listeríu

Alexander dæmdur fyrir vopnað rán
Innlent

Alexander dæmdur fyrir vopnað rán

Loka auglýsingu