1
Innlent

Múlakaffi stefnir þekktum framkvæmdastjóra vegna hamborgaraskuldar

2
Fólk

Emilíana Torrini og Ellert geisluðu saman í ferðalagi

3
Fólk

Áslaug Arna yfirgefur lúxuslífið á Hafnartorgi

4
Innlent

Sökuðu verktakafyrirtæki að stela kristalsskálum og postulínsmunum

5
Heimur

Salma Hayek fagnar sextugsafmælinu með nektarmyndum

6
Heimur

Karl konungur með skýr skilaboð til Harry

7
Peningar

Fyrrum landsliðsmaður og þjálfari stofnar fyrirtæki

8
Peningar

Sara í Júník stofnar nýtt fyrirtæki

9
Innlent

Lögreglan kölluð út að sama húsi í tvígang

10
Fólk

Glæsilegt Sigvaldahús á Kársnesi fær umhverfisviðurkenningu

Til baka

Beygjan sem sundrar íslensku þjóðinni

„Hann flautaði á mig, en ég þykist viss um að ég hafi verið að velja rétta akrein“

borgartúnkringlumýri
Gatnamótin frægu
Mynd: Skjáskot/Ja.is

Mikil umræða hefur skapast í Facebook-hópnum Fávitar í umferðinni um rétt akreinaval á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík. Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður Morgunblaðsins, vakti máls á atviki sem hún lenti í á gatnamótunum og leitaði álits annarra vegfarenda.

Andrea segir tvær beygjuakreinar liggja úr Borgartúni inn á Kringlumýrarbraut. Sjálf hafi hún verið á hægri beygjuakreininni og ekið inn á miðjuakrein Kringlumýrarbrautar. Ökumaður á vinstri beygjuakreininni hafi hins vegar einnig stefnt á miðjuakreinina og munað litlu að hann æki á hlið bifreiðar hennar.

„Hann flautaði á mig, en ég þykist viss um að ég hafi verið að velja rétta akrein. Þannig að ég spyr ykkur, hvor er fávitinn, ég eða hann?“ skrifaði Andrea og birti mynd með.

Andrea Sig mynd
Mynd: Andrea Sigurðardóttir/Facebook

Fjöldi svara barst og reyndust skoðanir skiptar um hvernig beri að aka um gatnamótin.

Andri Vífilsson taldi Andreu hafa verið í rétti. Hann benti á að akreinin lengst til hægri á Kringlumýrarbraut væri frárein, sem meðal annars mætti sjá á þykkari línu milli hennar og næstu akreinar. Að hans mati ætti hægri beygjuakreinin því að leiða ökumenn inn á miðjuakreinina en sú vinstri inn á akreinina lengst til vinstri.

Örn Arnarson tók aðra afstöðu og vísaði til almennrar reglu um akreinaval við beygju. Samkvæmt henni skuli ökumaður á hægri beygjuakrein, þar sem tvær beygjuakreinar liggja inn á veg með fleiri en eina akrein í sömu átt, koma inn á akrein lengst til hægri. Þröstur Halldórsson tók í svipaðan streng og taldi þrjár akreinar vera fyrir umferð í sömu átt á þessum stað.

Aðrir töldu hins vegar merkingarnar á gatnamótunum ráða úrslitum. Andrés Björgvin Böðvarsson sagði ökumann á vinstri akreininni eiga að fylgja brotalínu yfir gatnamótin og enda á akreininni lengst til vinstri. Þaðan mætti hann síðan færa sig yfir á miðjuakrein þegar aðstæður leyfðu.

Haukur Þór Grímsson var sama sinnis og sagði báða ökumenn eiga að halda sinni akrein yfir gatnamótin og skipta fyrst um akrein að beygjunni lokinni.

Andrea sagði umræðuna sjálfa sýna að þörf væri á skýrari merkingum.

„Miðað við skiptar skoðanir fólks þá held ég að það sé nauðsynlegt að merkja þetta mun betur,“ sagði hún.

Umræðan varð umfangsmikil og sýndi glögglega hversu ólíkan skilning ökumenn geta lagt í akreinamerkingar á einum fjölförnustu gatnamótum borgarinnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Útlendingalögum breytt til samræmis við Norðurlöndin
Innlent

Útlendingalögum breytt til samræmis við Norðurlöndin

Lengja tímann en herða skilyrðin
Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla
Innlent

Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér
Innlent

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér

Þorgrímur Þráins fær milljón
Innlent

Þorgrímur Þráins fær milljón

Guðmundur snýr aftur í Breiðholtið
Menning

Guðmundur snýr aftur í Breiðholtið

Byrði íslenskra leigjenda eykst
Innlent

Byrði íslenskra leigjenda eykst

Farþegi í Tenerife-flugi veiktist alvarlega
Heimur

Farþegi í Tenerife-flugi veiktist alvarlega

Selja draumaeign á höfuðborgarsvæðinu með ró og næði í fyrirrúmi
Myndir
Fólk

Selja draumaeign á höfuðborgarsvæðinu með ró og næði í fyrirrúmi

Eggert Ólafur Ásgeirsson er fallinn frá
Minning

Eggert Ólafur Ásgeirsson er fallinn frá

Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á hann
Innlent

Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á hann

Glæsilegt Sigvaldahús á Kársnesi fær umhverfisviðurkenningu
Myndir
Fólk

Glæsilegt Sigvaldahús á Kársnesi fær umhverfisviðurkenningu

Innlent

Útlendingalögum breytt til samræmis við Norðurlöndin
Innlent

Útlendingalögum breytt til samræmis við Norðurlöndin

Lengja tímann en herða skilyrðin
Beygjan sem sundrar íslensku þjóðinni
Innlent

Beygjan sem sundrar íslensku þjóðinni

Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla
Innlent

Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér
Innlent

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér

Þorgrímur Þráins fær milljón
Innlent

Þorgrímur Þráins fær milljón

Byrði íslenskra leigjenda eykst
Innlent

Byrði íslenskra leigjenda eykst

Loka auglýsingu