1
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

2
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

3
Innlent

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

4
Peningar

Þrettán á Seltjarnarnesi sem eru loðin um lófanna

5
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

6
Innlent

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun

7
Innlent

Sonur þingmanns grunaður um morð

8
Peningar

Átján í Hafnarfirði með digra sjóði og djúpa vasa

9
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

10
Fólk

Sána og sex svefnherbergi til sölu í draumahúsi

Til baka

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið

Konan hlaut meðal annars nefbrot, bólgur og mar í andliti

Kópavogur
Árásin átti sér stað í Kópavogi
Mynd: Kópavogsbær

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Bjart Daly Þórhallsson í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á konu í Kópavogi í júlí 2023. Fullnustu refsingarinnar er frestað í tvö ár haldi hann almennt skilorð.

Bjartur var ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Samkvæmt ákæru sló hann konuna í höfuðið með krepptum hnefa þannig að hún féll í götuna og sparkaði síðan í höfuð hennar þar sem hún lá. Konan hlaut meðal annars nefbrot, bólgur og mar í andliti.

Bjartur játaði að hafa slegið konuna en neitaði að hafa sparkað í hana. Fyrir lá myndskeið sem sýndi konuna ráðast á hann og slá hann ítrekað áður en hann svaraði fyrir sig.

Dómurinn taldi ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að Bjartur hefði sparkað í andlit konunnar. Hins vegar þótti sannað að hann hefði veitt henni tvö hnefahögg í höfuðið þannig að hún féll aftur fyrir sig á gangstétt eða götu. Einnig var talið sannað að nefbrot konunnar hefði hlotist af höggunum. Var háttsemin því heimfærð undir líkamsárás en ekki sérstaklega hættulega líkamsárás.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að konan hafði ráðist á Bjart og slegið hann ítrekað áður en hann sló hana. Þá hafði hann sýnt iðrun og mikla eftirsjá. Á móti kom að árás hans var alvarleg, beindist að höfði konunnar og verulegur stærðar- og aflsmunur var á þeim.

Bjarti var jafnframt gert að greiða konunni 664.907 krónur í skaða- og miskabætur, þar af 600 þúsund krónur í miskabætur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða
Innlent

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða

Meginmarkmið rannsóknar Kristínar Helgu var að skoða birtingarmyndir eineltis af hálfu kvenkyns gerenda á vinnustöðum
Svandís komin með nýtt starf
Fólk

Svandís komin með nýtt starf

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða
Innlent

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða

„Batman“ handtekinn á Kanarí
Heimur

„Batman“ handtekinn á Kanarí

Annar einstaklingur handtekinn vegna sverðsárásar í Svíþjóð
Heimur

Annar einstaklingur handtekinn vegna sverðsárásar í Svíþjóð

Selja rosalega krúttlegt einbýli í Kópavogi
Myndir
Fólk

Selja rosalega krúttlegt einbýli í Kópavogi

Reynslubolti tekur við Hafró
Innlent

Reynslubolti tekur við Hafró

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun
Innlent

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun

Átján í Hafnarfirði með digra sjóði og djúpa vasa
Peningar

Átján í Hafnarfirði með digra sjóði og djúpa vasa

Ók fullur á tvöföldum hámarkshraða
Innlent

Ók fullur á tvöföldum hámarkshraða

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni
Pólitík

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni

Innlent

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða
Innlent

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða

Meginmarkmið rannsóknar Kristínar Helgu var að skoða birtingarmyndir eineltis af hálfu kvenkyns gerenda á vinnustöðum
Ók fullur á tvöföldum hámarkshraða
Innlent

Ók fullur á tvöföldum hámarkshraða

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið
Innlent

Bjartur dæmdur fyrir að kýla konu í höfuðið

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða
Innlent

Atvinnuleysi tekur stökk milli mánaða

Reynslubolti tekur við Hafró
Innlent

Reynslubolti tekur við Hafró

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun
Innlent

Björn Ingi dæmdur fyrir hrottalega nauðgun

Loka auglýsingu