Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Blásið til sóknar í skólamálum eftir niðurstöður PISA

Hvernig komum við skóla­starfi í Reykjavík í fremstu röð?

Björg Magnúsdóttir leiðir nýtt samtal um framtíð skólastarfs í Reykjavík
Björg Magn­ús­dóttir leiðir nýtt sam­tal um fram­tíð skóla­starfs í Reykja­vík Mynd: Aðsend

Borgarráð hefur samþykkt tvær tillögur um aðgerðir sem miða að því að blása til sóknar í mennta­málum Reykja­víkurborgar til að bæta náms­árangur í lesskilningi, stærð­fræði og vísinda­læsi í leik- og grunn­skólum.

Í niður­stöðum PISA könnunarinnar sem kynnt var 7. september síðastliðinn kemur fram  að frammistaða íslenskra nemenda er undir meðaltali OECD-ríkja og síðri en frammistaða jafnaldra þeirra annars staðar á Norður­löndunum á öllum þremur sviðum rann­sóknarinnar. Jafnframt kemur fram að nemendur í Reykjavík eru yfir lands­meðaltali. Niður­stöðurnar kalla á náið samtal við kennara og annað starfs­fólk um framtíð skólamála í Reykjavík.  

Mótun tillagna til að bæta námsárangur

Tillaga var samþykkt í borgar­ráði um að fela skóla- og frístunda­sviði að móta og leggja fram tillögur að aðgerðum sem miða að því að bæta náms­árangur í lesskilningi, stærð­fræði og vísinda­læsi.  

Í umræðu sem fram fór við kynningu PISA-niður­staðna var lögð áhersla á að árangur í mennta­kerfinu byggist á mark­vissum og langtíma­miðuðum aðgerðum. Þar voru sérstak­lega nefnd snemmtæk íhlutun, öflug eftir­fylgni með náms­framvindu, styrking íslensku sem annars máls og fagleg forysta innan skóla. Einnig var bent á mikilvægi þess að tryggja samræmd vinnu­brögð og jafnan aðgang nemenda að stuðningi óháð skóla eða bakgrunni.  

Þessar áherslur eru í góðu samræmi við Mennta­stefnu Reykja­víkurborgar til 2030 þar sem lögð er áhersla á farsæld barna, jöfn tækifæri, inngildandi skóla­starf og að ákvarðanir byggi á þekkingu og mark­vissri eftir­fylgni. Þær eru því áfram mikil­vægur grunnur við túlkun nýrra niður­staðna og mótun aðgerða til framtíðar. Skóla- og frístunda­sviði er falið að leggja fram tillögur að aðgerðum sem miða að því að bæta náms­árangur í lesskilningi, stærð­fræði og vísinda­læsi.

Tillögurnar skulu fyrst lagðar fram í skóla- og frístunda­ráði og leikskóla- og daggæslu­ráði eigi síðar en fyrir lok nóvember næst­komandi og í framhaldi fyrir borgarráð og til umræðu í borgar­stjórn.

Stórsókn í menntamálum Reykjavíkurborgar

Borgarráð samþykkti enn fremur tillögu um að stofnað verði til samtals, við kennara og annað starfs­fólk í leik- og grunn­skóla, um sókn Reykja­víkurborgar í mennta­málum. Með samvinnu aðila verði leitað leiða til að efla leik- og grunn­skóla eins og kostur er og blása í kjölfarið til stór­sóknar í mennta­málum. Með því að taka vel utan um þessa mála­flokka er ætlunin að gera líf fjöl­skyldna í borginni betra. Á meðal verkefna verði málstofa í Tjarnarsal Ráðhússins  á haustönn með kennurum og öðru starfs­fólki  í leik- og grunn­skóla þar sem yfir­skriftin  verður: Hvernig komum við skóla­starfi í Reykjavík í fremstu röð? 

Í kjölfar málstofunnar verði unnin einföld samantekt og aðgerðar­áætlun sem lögð verði fyrir skóla- og frístundaráð og leikskóla- og daggæsluráð sem jafnframt yrði rædd í borgar­stjórn. Vinnuna leiði Björg Magnúsdóttir forseti borgar­stjórnar ásamt Bjarna Fritzsyni formanni skóla- og frístunda­ráðs og Sigrúni Ástu Einars­dóttur formanni leikskóla- og daggæslu­ráðs, í samstarfi við skóla- og frístunda­svið. 

Björg segir það mikil­vægast á kjör­tímabilinu að efla skóla­kerfið í Reykjavík og koma því í fremstu röð.

„ Við viljum auka náms­árangur barnanna okkar og að skólarnir séu eftir­sóttir vinnu­staðir. Þetta er stórt markmið og til að ná því þurfum við að eiga virkt og gott samtal; kennarar og starfs­fólk í leik- og grunn­skólum borgarinnar, foreldrar, Skóla- og frístunda­svið og kjörnir fulltrúar. Við hlökkum til að blása til sóknar með því að bjóða öflugan hóp velkominn til samtals í Ráðhúsinu," segir Björg Magnúsdóttir, forseti 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning