Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Breyta opnunartíma Sundhallarinnar

Sundhöll Reykjavíkur
Sundhöll Reykja­víkur Mynd: Skjáskot/Reykjavíkurborg

Framkvæmdir við endur­bætur á búnings­klefum Sund­hallar Reykja­víkur hafa reynst mun umfangs­meiri en upphaf­lega var gert ráð fyrir. Af þeim sökum verður opnunar­tíma Sund­hallarinnar breytt tíma­bundið á virkum dögum þegar skólasund hefst að nýju 25. ágúst.

Vinna við búnings­klefana hófst fyrr í sumar og stendur enn yfir. Á meðan framkvæmdunum stendur hafa karlar notað gamla búnings­klefann á neðri hæð en konur tvo útiklefa. Klefarnir rúma samtals um 60 gesti og verður því að miða hámarks­fjölda gesta í lauginni við þann fjölda.

Samkvæmt tilkynningu frá Reykja­víkurborg verður Sund­höllin opin á mánudögum frá klukkan 6.30 til 10 og aftur frá 14 til 22. Á þriðjudögum verður opið frá 6.30 til 8.30 og 14 til 22.

Á miðvikudögum verður opnunar­tíminn óbreyttur, frá 6.30 til 22. Á fimmtudögum verður opið frá 6.30 til 8.30 og aftur frá 15 til 22. Á föstu­dögum verður opið frá 6.30 til 10 og 15 til 22.

Breytingarnar eru nauðsynlegar vegna þess að skólasund hefst að nýju þriðjudaginn 25. ágúst og takmarkað rými er í búnings­klefum á meðan framkvæmdunum stendur.

Reykja­víkurborg segir áherslu lagða á að ljúka framkvæmdunum eins fljótt og kostur er svo starfsemi Sund­hallarinnar geti komist aftur í hefð­bundið horf. Vonir standi til þess að hægt verði að opna kvenna­klefann að nýju á haust­mánuðum.

Borgin biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem breytingarnar kunna að valda og þakkar gestum fyrir þolinmæði og skilning. Jafnframt er bent á að árskort og aðrar áskriftir gildi í öllum sund­laugum Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag