
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Þorstein Ó. H. Elísabetarson í tíu mánaða fangelsi fyrir fjölmörg brot, meðal annars ofbeldi og hótanir gegn nákominni konu, þjófnaði, fíkniefnabrot og vopnalagabrot. Brotin voru framin á tímabilinu frá júní 2025 til apríl 2026.
Alvarlegustu brotin vörðuðu ítrekað ofbeldi og hótanir gagnvart konu sem var honum nákomin. Í febrúar og apríl síðastliðnum réðst hann ítrekað gegn henni og hótaði henni meðal annars lífláti og líkamsmeiðingum.
Hótanirnar
„Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“
„Ef þú ætlar að láta svona fokking við mig þá veistu það að núna ertu búin að ganga svo langt en þú veist ég er […] en þú munt fá að finna fyrir því ef þú rekur mig út úr íbúðinni og gerir mig heimilislausan og endarðu kannski með afsagaða haglabyssu upp við fokking hausinn á þér“
„Ég læt kasta molotov sprengju í húsið hjá þér og C, ef þú hættir þessu ekki að þá mun molotov sprengjum rigna yfir hús fjölskyldumeðlima, þetta er allt undir þér komið“
„Ég mun drepa þig“
„Þannig ég get komið hérna og barið þig í klessu“
Í einu tilvikanna ýtti hann konunni í rúm, hélt henni niðri, kastaði í hana munum og sló hana í andlit og öxl. Hún hlaut af þessu mar og bólgur víða á líkamanum. Hann ógnaði henni einnig með skærum og hótaði að stinga hana. Síðar sama dag hótaði hann, úr lögreglubifreið, að drepa hana þegar hann losnaði úr haldi lögreglu.
Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir nokkra þjófnaði. Í mars stal hann kjötvörum að verðmæti tæplega tíu þúsund króna úr verslun í Reykjavík og hótaði öryggisverði með hnífi þegar hann reyndi að stöðva hann. Sama mánuð braust hann inn á tvo staði í Hveragerði og stal meðal annars sígarettum, orkudrykkjum og matvælum.
Þá var hann ítrekað staðinn að vörslu hnífa á almannafæri og hafði fíkniefni og lyf í fórum sínum. Meðal efna sem lögregla lagði hald á voru kókaín, amfetamín, maríhúana og rúmlega 147 grömm af kannabisblönduðu efni.
Maðurinn játaði brotin skýlaust. Dómurinn leit honum það til málsbóta ásamt ungum aldri og jákvæðum breytingum á högum hans. Sakaferill hans og alvarleiki ofbeldisins voru hins vegar metin til refsiþyngingar.
Hann var dæmdur í tíu mánaða óskilorðsbundið fangelsi og til að greiða brotaþolanum 117 þúsund krónur í bætur.