1
Heimur

Aukning MS-sjúkdómsins rakin til lífsstíls

2
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

3
Innlent

Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun

4
Fólk

Eitt óvenjulegasta hús Íslands sett á sölu

5
Fólk

Íslensk söngstjarna selur Konu

6
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

7
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

8
Fólk

Bára Beauty á von á tvíburum

9
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

10
Fólk

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

Til baka

Eiríkur Elís og Hildur Briem halda áfram að dæma fólk

Eru bæði reynslumikil á sínu sviði

Eiríkur Elís Þorláksson
Eiríkur Elís Þorláksson
Mynd: Háskólinn í Reykjavík

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Eiríkur Elís Þorláksson verði skipaður dómari við Landsrétt frá 1. september 2026 og að Hildur Briem verði skipuð dómari við Landsrétt frá 5. október 2026.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnvöldum.

Eiríkur Elís Þorláksson lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2001 og LL.M.- námi við King´s College í London árið 2008. Hann öðlaðist réttindi til málflutnings í héraði árið 2002 og fyrir Hæstarétti árið 2008. Þá lauk hann prófi til að teljast hæfur stjórnarmaður í vátryggingafélagi 2011.

Að loknu embættisprófi starfaði Eiríkur Elís um hríð hjá óbyggðanefnd en hóf árið 2002 störf á lögmannastofu þar sem hann starfaði til ársins 2011, þar af sem meðeigandi frá 2004. Frá 2012 hefur hann starfað við lagadeild Háskólans í Reykjavík, fyrst sem lektor en sem dósent frá 2017, auk þess sem hann hefur sinnt lögmannsstörfum samhliða á þeim tíma. Frá mars 2019 til apríl 2024 gegndi hann starfi deildarforseta lagadeildar Háskólans í Reykjavík auk þess að sinna kennslu við aðra háskóla. Þá var hann settur dómari við Landsrétt samtals í um fjögurra mánaða skeið á árunum 2024 og 2025,  og var varadómandi í Endurupptökudómi  2021 - 2026.

Eiríkur Elís hefur jafnframt ritað fræðibækur í lögfræði og fjölda ritrýndra fræðigreina og setið í stjórnum ýmissa félaga, svo sem Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og Stoða hf., í stjórn Bókaútgáfunnar Codex og gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands, þar af sem formaður frá 2022 til 2024. Eiríkur hefur verið settur dómari við Landsrétt frá 5. janúar 2026.

Hildur Briem lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2000, LL.M.- námi við Háskólann í Lundi árið 2005 og viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands árið 2022. Hún öðlaðist réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómi árið 2001. Að loknu embættisprófi starfaði hún sem fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík á ákærusviði embættisins en hóf störf hjá umboðsmanni Alþingis árið 2005 og starfaði þar til ársins 2008 þegar hún varð aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Austurlands.

Hún var skipuð í embætti héraðsdómara og dómstjóra við Héraðsdóm Austurlands árið 2011 en árið 2018 fluttist hún í Héraðsdóm Reykjavíkur og hefur verið dómari þar síðan fyrir utan að hún var settur landsréttardómari í um sex mánaða skeið árið 2021.Hún hefur verið settur varadómari í Hæstarétti í fjórum málum og verið dómandi við Endurupptökudóm frá því í febrúar 2025.

Hildur hefur sinnt stundakennslu í stjórnsýslurétti við lagadeild Háskóla Íslands í um fjögurra ára skeið og setið í áfrýjunarnefnd ágreiningsmála á kirkjulegum vettvangi frá árinu 2016 og setið í stjórn Dómarafélags Íslands. Þá hefur hún tekið sæti í nokkrum málum hjá kærunefnd útboðsmála og verið skipuð í nefnd dómstólasýslunnar um réttarfar og skilvirkni dómstóla.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

Blóðummerki voru víða í svefnherberginu þar sem árásin átti sér stað
Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum
Menning

Aðstandendur tónleika Of Monsters and Men leggja áherslu á að tónleikarnir séu aðgengilegir öllum

Með milljónir í töskunum á leið úr landi
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

Céline Dion steig berfætt upp á BMW og söng fyrir aðdáendur
Myndband
Heimur

Céline Dion steig berfætt upp á BMW og söng fyrir aðdáendur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife
Heimur

Hópi ölvaðra kvenna vísað úr flugi til Tenerife

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men
Fólk

Gagnrýnir fyrirkomulag á tónleikum Of Monsters and Men

Besta leiðin til að panta kaffið þitt ef þú vilt huga að heilsunni
Fólk

Besta leiðin til að panta kaffið þitt ef þú vilt huga að heilsunni

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum
Fólk

Fyrrum þingmaður segir sjálfsfróun ekki þurfa að ógna samböndum

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

Bára Beauty á von á tvíburum
Fólk

Bára Beauty á von á tvíburum

Eygló og Eymundur verðlaunuð fyrir gott starf
Fólk

Eygló og Eymundur verðlaunuð fyrir gott starf

Ælan gæti kostað hálfa milljón króna
Heimur

Ælan gæti kostað hálfa milljón króna

Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína
Innlent

Aron Atli dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonu sína

Blóðummerki voru víða í svefnherberginu þar sem árásin átti sér stað
Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun
Innlent

Landlæknir svipti sex lækna starfsleyfi eftir afhjúpun

Með milljónir í töskunum á leið úr landi
Innlent

Með milljónir í töskunum á leið úr landi

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis
Innlent

Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

Óhugnanlegar tilkynningar úr Árbæ teknar mjög alvarlega
Innlent

Óhugnanlegar tilkynningar úr Árbæ teknar mjög alvarlega

Loka auglýsingu