1
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

2
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

3
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

4
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

5
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

6
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

7
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

8
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

9
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

10
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Til baka

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

„Sem fer betur búum við vel að því að hafa gott fólk og gott viðbragð“

slökkvilið
Slökkvilið að störfumGærkvöldið var ansi annasamt í Fjarðabyggð
Mynd: Slökkvilið Fjarðabyggðar

Slökkvilið Fjarðabyggðar stóð frammi fyrir annasömu kvöldi í gær þegar það var kallað út vegna elds í skemmu við bæinn Neðri-Skálateig í Norðfjarðarsveit, á sama tíma og fjögur sjúkraútköll komu upp.

Ingvar Georg Georgsson, slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar, segir í samtali við Austurfrétt, sjaldgæft að slík atvik falli saman en hrósar viðbragðsaðilum fyrir skjót og fumlaus viðbrögð.

„Það er ekki algengt að við fáum marga sjúkraflutninga ofan í eldsvoða en sem fer betur búum við vel að því að hafa gott fólk og gott viðbragð,“ segir hann.

Þegar slökkviliðið kom á vettvang var skemman þegar alelda. Að sögn Ingvars var það lán í óláni að tveir slökkviliðsmenn voru staddir nálægt slökkvistöðinni í Neskaupstað og gátu lagt af stað strax. Fyrsti slökkvibíllinn var því kominn á vettvang aðeins níu mínútum eftir að útkallið barst.

Slökkvistarfið beindist fyrst og fremst að því að verja nærliggjandi byggingar og tókst það, en skemman sjálf eyðilagðist. Í henni voru meðal annars bifreið, hestakerra og ýmis tæki sem notuð voru við búrekstur.

Ekki liggur enn fyrir hvað olli eldinum. Slökkvistarfið stóð yfir í rúmar þrjár klukkustundir. Þar sem bárujárnsþak skemmunnar hrundi þurfti að kalla til kranabíl svo hægt væri að fjarlægja járnið og komast að glæðum undir því. Auk slökkvibíla frá Neskaupstað kom dælubíll frá Reyðarfirði á vettvang ásamt sjúkrabifreið.

Fjórir sjúkrabílar í verkefnum samtímis

Á meðan eldsvoðinn stóð yfir bárust einnig þrjú önnur sjúkraútköll. Tvö þeirra voru leyst af stöðinni á Reyðarfirði og eitt frá Fáskrúðsfirði. Með sjúkrabifreiðinni sem var send vegna brunans voru því fjórir sjúkrabílar í verkefnum á sama tíma.

„Viðbragðið var sérstaklega gott miðað við að það er hásumar og margt fólk í fríi,“ segir Ingvar.

Síðar um daginn sinnti slökkviliðið einnig sjúkraflutningi frá sjúkrahúsinu í Neskaupstað á Norðfjarðarflugvöll, þar sem sjúklingur var afhentur þyrlu Landhelgisgæslunnar til flutnings til Reykjavíkur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Spyr hvort fólk styðji aftökur í Bandaríkjunum sem það fordæmir annars staðar
Innlent

Spyr hvort fólk styðji aftökur í Bandaríkjunum sem það fordæmir annars staðar

„Nú virðast Bandaríkin ætla að bætast í þann hóp (aftur), eins og fátt sé eðlilegra“
Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife
Heimur

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði
Innlent

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri
Innlent

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri

Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Myndband
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif
Viðtal
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ferðamálastofa fundaði um öryggi Stuðlagils
Stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru
Myndband
Landið

Stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

Loka auglýsingu