1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

10
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Til baka

Enskur landsliðsmaður veður í Eggert og Björgólf

„Það setti bæði mig og pabba minn út af laginu“

Eggert og Björgólfur
Eggert Magnússon og Björgólfur GuðmundssonSkelltu sér á leik.
Mynd: Getty

Fyrrum enski landsliðsframherjinn Darren Bent segir að hann hafi hafnað félagaskiptum til West Ham sumarið 2007 eftir að eigendur félagsins settu honum úrslitakosti um að skrifa strax undir samning. Bent endaði þess í stað hjá Tottenham Hotspur fyrir metfé á þeim tíma.

Bent greindi frá þessu í hlaðvarpinu In The Mixer. Þar rifjaði hann upp að Alan Curbishley, þáverandi knattspyrnustjóri West Ham, hafi lagt mikla áherslu á að fá hann til félagsins árið 2007.

Framherjinn var þá í fríi í Miami þegar West Ham hafði samband og bauð honum að fljúga heim fyrr til að ræða samning. Bent segir félagið hafa greitt ferðina og að hann hafi samþykkt að koma heim af virðingu við Curbishley, sem hafði áður stýrt honum hjá Charlton.

Á þessum tíma voru Björgólfur Guðmundsson og Eggert Magnússon eigendur West Ham og að sögn Bent voru miklir fjármunir í umferð hjá félaginu.

Bent segir þó að fundurinn með eigendum félagsins hafi farið illa. Hann hafi óskað eftir sólarhring til að ræða málin við föður sinn áður en hann tæki ákvörðun, enda hafi Tottenham einnig haft áhuga á honum.

Samkvæmt Bent vildu eigendur West Ham hins vegar fá svar tafarlaust og hafi gefið honum þau skilaboð að samningstilboðið yrði dregið til baka ef hann skrifaði ekki undir samstundis.

„Það setti bæði mig og pabba minn út af laginu,“ sagði Bent í viðtalinu. „Þegar við fórum þaðan var umboðsmaðurinn minn farinn að fá skilaboð um að samningurinn væri úr sögunni ef ég vildi ekki skuldbinda mig strax.“

Bent ákvað í kjölfarið að ganga til liðs við Tottenham og skrifaði undir samning við félagið fyrir 16,5 milljónir punda, sem þá var félagsmet hjá Spurs.

Bent var um tíma einn besti framherjinn í ensku úrvalsdeildinni og lék meðal annars 13 landsleiki fyrir England Á ferlinum lék hann meðal annars með Aston Villa, Tottenham, Sunderland, Fulham og Derby County áður en hann lagði skóna á hilluna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti
Myndband
Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti

„Hann þarf að læra af þessu.“
Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku
Sport

Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli
Myndir
Sport

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð
Sport

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð

Loka auglýsingu