1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Konan er fundin

4
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

5
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

8
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

9
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

10
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

Til baka

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“

Viktor Orri Valgarðsson segir andstæðinga ESB sætta sig við að Ísland standi í stað.

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar GrímssonÓlafur Ragnar er einn af aðalsprautum Áfram Ísland!
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi varaþingmaður Pírata, gagnrýnir andstæðinga aðildarviðræðna við Evrópusambandið í nýrri Facebook-færslu. Hann segir rangt að ætla að velmegun Íslands sé til komin vegna þess að landið standi utan ESB og veltir því upp hvort ný hreyfing gegn viðræðunum sé í raun hreyfing sem vilji stöðnun.

Viktor bendir á að Ísland sé vissulega eitt ríkasta ríki heims án aðildar að Evrópusambandinu, en telur ástæðuna fremur felast í sérstöðu landsins en því að standa utan sambandsins.

„Það er alveg rétt að Ísland er eitt ríkasta land í heimi án þess að vera í ESB. Eflaust er það stór hluti ástæðunnar fyrir því að við (og Noregur og Sviss) höfum ekki farið þangað inn enn: hvatinn er ekki jafnsterkur og hjá mörgum öðrum ríkjum og óttinn við að missa forréttindin sem við fengum við það að fæðast á þessu landi er skiljanlegur,“ skrifar hann.

Hann segir því næst að það sé villandi að halda því fram að auðlegð Íslands stafi af því að landið sé ekki í Evrópusambandinu.

„Það þýðir ekki að við séum rík vegna þess að við erum ekki í ESB eða að það myndi breytast við aðild (eins og mér heyrist Ólafur Ragnar og fleiri vera að gefa í skyn) – við erum í stuttu máli rík út af fiski í kringum landið, einstakri náttúru sem laðar að sér ótal ferðamenn, heppni með nágranna og svo aðild okkar að EES,“ segir hann.

Viktor telur að aðild að Evrópusambandinu gæti bætt lífskjör enn frekar, meðal annars með stöðugri gjaldmiðli, lægri vöxtum og verðbólgu og aukinni samkeppni á matvörumarkaði. Hann vísar meðal annars til skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands frá 2009 um hugsanleg áhrif á matvælaverð.

„En það þýðir ekki að við gætum ekki haft það enn betra ef við værum aðilar að ESB og fengjum líka stöðugan gjaldmiðil og væntanlega lægri vexti og verðbólgu með stuðningi Seðlabanka Evrópu, sem og samkeppni á matvörumarkaði sem væri líkleg til að lækka t.d. verð á kjúklingi um ca. 70% og verð á svínakjöti, mjólkurvörum og eggjum um ca. 35-60% (skv. skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ frá 2009).“

Í lok færslunnar gagnrýnir hann nýja hreyfingu sem ber nafnið „Áfram Ísland!“ og spyr hvort hún sé í raun andvíg breytingum.

„Af hverju megum við ekki hafa það betra en við gerum í dag, þó svo við höfum það nokkuð gott miðað við aðrar þjóðir? Er „Áfram Ísland!“ hreyfingin í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin? „Við höfum það nógu gott nú þegar! Við megum ekki við meir...““ skrifar Viktor Orri.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjölmiðlarnir uppljóstruðu um vitneskju forsætisráðherrans um yfirvofandi hryðjuverkaárás Hamas-liða 7. október 2023.
Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

„Þetta eru þeir sem vilja bara skattleggja almúgann - ekki auðmenn“
Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Loka auglýsingu