1
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

2
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

3
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

4
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

5
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

6
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

7
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

8
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

9
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

10
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

Til baka

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

„Ég ætla að leyfa mér að efast um að svona „greiðar“ séu rétt skráðir almennt“

Hildur Björnsdóttir oddviti
„Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að engum verkefnum hafi verið útvistað í kjölfarið, en hún hafi notið aðstoðar félaga síns við að skrifa fréttatilkynningu um málið“

Björn Leví Gunnarsson, tölvunarfræðingur og fyrrverandi alþingismaður fyrir Pírata bendir borgarstjóra Reykjavíkur á í opinberri færslu að ekki sé hægt að fá greiða sem aðrir þurfi að borga fyrir án þess að það sé gefið upp sem styrkur.

„Stjórnmálamenn geta ekki fengið "greiða" sem aðrir þurfa almennt að borga fyrir án þess að það sé gefið upp sem styrkur til viðkomandi stjórnmálamanns eða flokks samkvæmt lögum um fjármögnun stjórnmálasamtaka.
Ef það er eitthvað greitt fyrir þennan "greiða" þá þarf afsláttur að koma fram - og ef sá afsláttur er umfram það sem aðrir geta fengið, þá verður að skrá mismuninn sem styrk.
Ég ætla að leyfa mér að efast um að svona "greiðar" séu rétt skráðir almennt. Því það var mjög oft sem maður heyrði af því að sumir flokkar fengu ókeypis lögfræðiálit á alls konar málum.
Eins sagan sem maður heyrði var um einhvern ráðgjafa sem skipti yfir í Viðreisn - og var þá spurður hvernig hann myndi fá einhver verkefni.“

Engum samskiptaverkefnum útvistað

Samskiptastjóra og öllum sex upplýsingafulltrúum Reykjavíkurborgar var sagt upp í síðustu viku. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að engum verkefnum hafi verið útvistað í kjölfarið, en hún hafi notið aðstoðar félaga síns við að skrifa fréttatilkynningu um málið, segir í frétt á RÚV. Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráði lögðu fram fyrirspurn á fundi í gær þar sem óskað var eftir svörum um hvernig upplýsingamálum borgarinnar yrði háttað eftir umfangsmiklar uppsagnir á skrifstofu samskipta og viðburða. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri viðurkennir að samskiptamálin hafi verið snúin eftir að sex upplýsingafulltrúum og samskiptastjóra var sagt upp. Hún hafi því leitað ráðgjafar í kringum sig.

Ókeypis aðstoð frá varaborgarfulltrúa

Borgarstjóri naut liðsinnis Más Mássonar við skrif á fréttatilkynningu um uppsagnirnar. Már er annar eigandi ráðgjafarskrifstofunnar Athygli og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Hildur tekur fram að um vinagreiða hafi verið að ræða og ekkert verði greitt fyrir þjónustuna.„Ég hélt á þessum málum í meginatriðum sjálf. Ég leitaði mér ráðgjafar fólks í kringum mig en það voru bara vinagreiðar og ekkert sem greitt er fyrir,“ segir Hildur og ítrekar að engum verkefnum hafi verið útvistað.Hins vegar hefur verið samið við tvo starfsmenn um að brúa bilið og vinna fram að áramótum á meðan unnið er að nýju fyrirkomulagi. Engir nýir upplýsingafulltrúar hafa verið ráðnir.

Framtíðarfyrirkomulag óákveðið

Að sögn Hildar hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort upplýsingamálum borgarinnar verði útvistað til einkafyrirtækja í framtíðinni. Nýtt fyrirkomulag verði kynnt innan tíðar.Hún bendir á að skrifstofa borgarstjóra og borgarritara hafi í gegnum árin útvistað ýmsum verkefnum tengdum ráðgjöf og stefnumótun. Það hafi forverar hennar gert og eflaust verði það gert að einhverju leyti aftur, en málið sé ekki komið til skoðunar.

Mágkonan starfar hjá Athygli

Spurð að því hvort almannatengslastofan Athygli komi til greina í framhaldinu segir Hildur að skoða þurfi hvaða stofur hæfa hverju sinni, en engar ákvarðanir liggi fyrir.Ólöf Skaftadóttir, mágkona borgarstjóra, starfar hjá Athygli. Aðspurð hvort þau tengsl kunni að teljast tortryggileg segist Hildur ekki hafa leitt hugann að því, enda hafi viðskipti við fyrirtækið ekki verið til skoðunar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“
Heimur

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“

Martin Short ræðir sorgina eftir að dóttir hans lést
Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran
Heimur

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran

Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

Sendingin kom til landsins í mars á síðasta ári
Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Lögreglan býður foreldrum aðstoð
Innlent

Lögreglan býður foreldrum aðstoð

Loka auglýsingu