
Nokkuð var um verkefni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna voru þjófnaðarmál, innbrot, líkamsárás og fjölmörg umferðarlagabrot.
Ferðamaður kom á lögreglustöð og tilkynnti að hann hefði orðið fyrir vasaþjófnaði fyrr um daginn. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.
Þá var tilkynnt um þjófnað og eignarspjöll í fyrirtæki og síðar um innbrot í annað fyrirtæki. Einnig voru einstaklingar stöðvaðir í matvöruverslun, grunaðir um þjófnað.
Tilkynning barst jafnframt um minniháttar líkamsárás og er hún einnig til rannsóknar.
Nokkuð var um umferðarlagabrot. Fjórir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og var einn þeirra jafnframt grunaður um að aka án ökuréttinda. Tveir aðrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur og einn var grunaður um að aka sviptur ökuréttindum.
Þá var ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekið gegn rauðu ljósi. Hans bíður sekt auk punkts í ökuferilsskrá.
Lögreglu barst einnig tilkynning um bifreiðar sem voru að spóla á bílastæði við matvöruverslun. Bifreiðarnar voru farnar þegar lögreglu bar að garði.
Að lokum var tilkynnt um óhapp á rafhlaupahjóli. Viðkomandi var fluttur á slysadeild til frekari skoðunar.
