1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

10
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Til baka

FIFA lengir hálfleik úrslitaleiksins á HM

Stjörnum prýtt tónlistaratriði í anda Super Bowl fyrirhugað á sunnudaginn.

Gianni Infantino
Younis Mahmoud (vinstri), Gianni InfantinoInfantino, forseti FIFA, er allt annað en vinsæll meðal knattspyrnuaðdáenda
Mynd: ROBERTO SCHMIDT / AFP

Þau sem óttuðust að úrslitaleikur heimsmeistaramótsins í knattspyrnu myndi snúast um fótbolta geta andað léttar. FIFA ætlar að lengja hálfleikinn í 20 til 25 mínútur svo nægt pláss verði fyrir stórtónleika í anda Super Bowl. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Á meðan leikmenn reyna að halda sér heitum og þjálfarar koma taktík sinni á framfæri munu Madonna, Shakira og BTS sjá um að halda áhorfendum uppteknum. Sýningin sjálf á að taka um 11 mínútur, en með öllum tilheyrandi undirbúningi og tiltekt verður hálfleikurinn töluvert lengri en knattspyrnureglur gera ráð fyrir.

Samkvæmt reglum IFAB á hálfleikur ekki að vara lengur en 15 mínútur. Það virðist þó vera smáatriði þegar heimsstjörnur eru komnar á sviðið.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem FIFA teygir á hléinu. Í úrslitaleik heimsmeistaramóts félagsliða í fyrra stóð hálfleikurinn í 24 mínútur vegna tónlistarsýningar með Coldplay, Doja Cat og fleirum.

Justin Bieber bættist í síðustu viku við flytjendalistann og verður því nóg um dýrðir. Auk hans koma fram Burna Boy, Gustavo Dudamel, PS22 Chorus og Coldplay, en Chris Martin hefur sett saman dagskrána.

Ekki nóg með það. Áður en boltanum verður yfirhöfuð sparkað af stað verður vegleg lokahátíð þar sem meðal annars Tom Cruise, Robbie Williams, Nicole Scherzinger og Laura Pausini stíga á svið, auk þess sem Jennifer Hudson syngur bandaríska þjóðsönginn.

Þegar öllu þessu er lokið verður loksins hægt að spila sjálfan úrslitaleikinn.

Spánn hefur þegar tryggt sér sæti í úrslitunum og mætir annaðhvort Englandi eða Argentínu. En fyrst þarf auðvitað að komast í gegnum tónleikana.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

„Þetta er eins og risar hafi rifið og tætt allt sem eitt sinn lifði hér“
Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti
Myndband
Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti

„Hann þarf að læra af þessu.“
Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku
Sport

Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli
Myndir
Sport

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð
Sport

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð

Loka auglýsingu