Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fluttur á sjúkrahús eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Landspítalinn í Fossvogi
Land­spít­al­inn í Fossvogi Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í ýmsu að snúast í morgun og þurfti meðal annars að hafa afskipti af nokkrum ökumönnum vegna umferðar­lagabrota. Einn þeirra mældist á 125 kílómetra hraða þar sem hámarks­hraði er 90 kíló­metrar á klukku­stund.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu í dag.

Afskipti voru höfð af nokkrum ökumönnum í morgun vegna ólíkra brota. Auk hrað­aksturs voru ökumenn stöðvaðir vegna aksturs gegn rauðu ljósi, aksturs án ökuréttinda og gruns um akstur undir áhrifum áfengis.

Lögreglu barst jafnframt tilkynning um umferðar­slys þar sem vespu hafði verið ekið á annað ökutæki. Smávægileg meiðsl urðu í slysinu.

Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni sem tók myndband af slysstað á meðan hann ók fram hjá vettvangi.

Karlmaður var fluttur á slysa­deild eftir alvarlega líkams­árás í heimahúsi í Kópavogi í dag, en tilkynning um málið barst um þrjúleytið. Einn hefur verið hand­tekinn, en rannsókn málsins er á algjöru frumstigi.

Ýmis önnur verkefni komu inn á borð lögreglu. Tilkynnt var um þjófnað á reiðhjóli og lögregla aðstoðaði sjúkra­flutnings­menn við störf þeirra.

Einnig var haft afskipti af manni sem var í annarlegu ástandi og einum ölvuðum einstaklingi var vísað út úr húsi.

Þá barst lögreglu hávaða­kvörtun eldsnemma í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag