1
Peningar

Japis enn og aftur gjaldþrota

2
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

3
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

4
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

5
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

6
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

7
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

8
Fólk

„Hvaða wimpy kid gay syndrome er þetta helvíti?“

9
Heimur

Matt Brown látinn aðeins 43 ára gamall

10
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Til baka

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu

„Við getum kannski ekki kosið Ísland í Eurovision í ár, en í þetta skiptið getum við heldur betur kosið Ísland og torfhúsaarfinn okkar í Evrópsku minjaverndarverðlaununum – áfram Ísland!“

Tyrfingsstaðir
Mynd: Aðsend

Fornverkaskólinn í Skagafirði hefur hlotið Evrópsku minjaverndarverðlaunin / Europa Nostra Awards 2026, sem teljast virtustu viðurkenningar sinnar tegundar í Evrópu.

Verðlaunin eru veitt af Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Europa Nostra með stuðningi úr Menningaráætlun ESB. Að þessu sinni fengu 30 verkefni frá 18 löndum viðurkenningu, en alls bárust 261 umsókn frá 40 löndum.

Vernda torfhúsaarfinn

Fornverkaskólinn er rekinn af Byggðasafn Skagfirðinga og var stofnaður árið 2006 með það markmið að varðveita hefðbundnar íslenskar byggingaraðferðir, sérstaklega torfhúsagerð.

Með verklegri kennslu, rannsóknum og endurbyggingu friðaðra húsa vinnur skólinn að því að halda þessari sérstöku handverkshefð lifandi og miðla henni til komandi kynslóða.

„Við erum gríðarlega stolt af þessari viðurkenningu á starfi síðustu tveggja áratuga. Við vonum að hún varpi ljósi á torfhúsaarfinn, sem er í hættu þar sem sífellt færri kunna handverkið,“ segir Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga.

Hundruð nemenda hafa tekið þátt

Frá árinu 2007 hefur skólinn staðið fyrir um 50 námskeiðum með þátttöku um 500 nemenda, bæði frá Íslandi og erlendis. Kennslan hefur að stórum hluta farið fram á Tyrfingsstöðum í Skagafirði, þar sem söguleg hús hafa verið endurbyggð og nýtt sem lifandi kennsluumhverfi.

Í umsögn dómnefndar segir:

„Verkefnið tekst á við hnignun þekkingar á hefðbundnu byggingarhandverki í Evrópu með því að miðla því áfram á lifandi og áþreifanlegan hátt. Það byggir á öflugu kennslulíkani um flutning þekkingar á milli kynslóða sem tryggir bæði varðveislu húsanna sjálfra og þeirrar þekkingar sem þarf til að halda þeim við. Verkefnið stendur á traustum grunni vandaðs handverks og nýtur stuðnings af alþjóðlegu og fræðilegu samstarfi, og er góð fyrirmynd fyrir varðveislu torfhúsaarfsins.“

Hvetja landsmenn til að kjósa

Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Nikósíu á Kýpur 28. maí. Almenningur getur jafnframt kosið sitt uppáhaldsverkefni í netkosningu um „Public Choice Award“, þar sem sigurvegari hlýtur 10.000 evrur.

„Við getum kannski ekki kosið Ísland í Eurovision í ár, en í þetta skiptið getum við heldur betur kosið Ísland og torfhúsaarfinn okkar í Evrópsku minjaverndarverðlaununum – áfram Ísland!“ segir Berglind og bendir á að hægt sé að greiða atkvæði til 12. maí á vefsíðu Europa Nostra.

Þetta er í annað sinn sem íslenskt verkefni hlýtur þessi verðlaun frá því þau voru fyrst veitt árið 2002. Áður hlaut Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði viðurkenninguna árið 2016.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í stærsta lögregluumdæminu
„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Landið

Ekið á gangandi vegfaranda
Landið

Ekið á gangandi vegfaranda

Lögreglan leitar að vitnum
Séra Arnaldur blessar Árborg
Landið

Séra Arnaldur blessar Árborg

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi
Landið

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn
Landið

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið
Landið

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra
Landið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra

Loka auglýsingu