1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Til baka

Forstöðumaður sakar Reykjavíkurborg um vanhugsaðar breytingar

„Á endanum bitna þessar ákvarðanir á börnum okkar“

Frístundamiðstöð 105
„Frístundamiðstöðvar lagðar af með einu pennastriki“
Mynd: Reykjavíkurborg

Mikil ólga er á vettvangi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Reykjavík eftir að umfangsmiklar skipulagsbreytingar voru knúnar í gegn í skjóli borgarráðs. Hafsteinn Bjarnason, forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar 105, segir starfsemi í þágu barna og ungmenna í alvarlegri óvissu og sakar borgaryfirvöld um skeytingarleysi og samráðsleysi.

„Í vikunni varð starf mitt flóknara og erfiðara,“ segir Hafsteinn í upphafi færslu sinnar. Hann lýsir því hvernig næsti yfirmaður hans, deildarstjóri, hafi verið sagt upp og boðið annað, illa skilgreint starf, auk þess sem fjármálastjóri hafi verið rekinn. „Þetta eru tvær manneskjur sem að ég leita hvað mest til í mínu starfi, sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar, eftir aðstoð.“

Frístundamiðstöðvar lagðar af með einu pennastriki

Breytingarnar fela í sér að frístundamiðstöðvar borgarinnar hafa verið lagðar niður, en Hafsteinn hefur starfað hjá sinni miðstöð í níu ár. Hann bendir á að þessar miðstöðvar hafi staðið að gríðarlega mikilvægum verkefnum í þágu almennings. Nefnir hann sérstaklega stofnun Flotans – vettvangsstarfs félagsmiðstöðva, sem sinnir m.a. gæsluhlutverki á menningarnótt, auk Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar og annarra mikilvægra verkefna fyrir börn og unglinga. Aðrar frístundamiðstöðvar borgarinnar, sem státa af svipuðum störfum, voru sömuleiðis lagðar niður og nýtt fyrirkomulag tekur nú við. Hafsteinn gefur lítið fyrir undirbúninginn:

„Allt var þetta gert að því er virðist að illa ígrunduðu máli og ekki áttað sig á afleiðingum.“

Óttast lakari þjónustu og meira álag

Hafsteinn óttast að þegar verkefnum fjármálastjóra og deildarstjóra er dreift á færri hendur muni vinnuálag á forstöðumenn og aðra starfsmenn aukast óhóflega, sem muni á endanum bitna á gæðum þjónustunnar. „Hver tekur þeirra bolta? Þeir fara á hendur færri aðila sem verður til þess að einstaklingar falla á milli hluta. Þjónusta verður lakari fyrir vikið. Fólk á að hlaupa hraðar og vinna verkefni sem að er ekki í þeirra starfslýsingu. Forstöðumenn eru þar á meðal,“ varar hann við.

Þótt hann skilji að stundum þurfi að endurmóta skipurit, segir hann vinnubrögðin algjörlega óásættanleg. „Ekkert samtal var haft við vettvanginn. Ekki neitt! Hlutir gerðir í skjóli borgarráðs sem hefur rétt til að hrinda svona breytingum án umræðu í framkvæmd í ljósi ákvæðis um framkvæmdarrétt innan sumartímabils.“

„Á bak við tölur er fólk“

Hafsteinn segist blöskra að svona starfshættir líðist hjá jafn stórum vinnustað og Reykjavíkurborg er. Hann minnir stjórnmálamenn á að mannlegi þátturinn gleymist oft í hagræðingaraðgerðum. „Á bak við tölur er fólk. Það að breyta mínus í plús gerist ekki á einni nóttu og það þarf að vanda til verka. Hér var það ekki gert.“

Að lokum gagnrýnir hann málflutning pólitíkusa í fjölmiðlum sem fullyrða að breytingarnar muni ekki leiða til þjónustuskerðingar.

„Pólitíkusar sem standa fyrir þessum breytingum voga sér svo að mæta í viðtöl og segja að engin þjónustuskerðing muni verða vegna þessara breytinga. Á endanum bitna þessar ákvarðanir á börnum okkar og ungmennum.“

Að sögn Hafsteins er staðan á vettvangi þung og einkennist af óvissu: „Eftir situr svo skelkaður vettvangur frístundaheimila og félagsmiðstöðva sem að vill ekkert nema gott gera fyrir sína þjónustuþega, íbúa Reykjavíkurborgar.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

„Af hverju var þetta leyft?“
Íhugar að fara í mál við Sigfús
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Loka auglýsingu