1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

3
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

4
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

5
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

6
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

7
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

8
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

9
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

10
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Til baka

Fyrrum innflytjandi varar við innflytjendum

Ari Edwald var sjálfur innflytjandi í Portúgal fyrr á þessu ári

Ari Edwald
Ari EdwaldEr oddviti Miðflokksins í Reykjavík
Mynd: Golli

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, varar við innflytjendum í myndbandi sem hann birti á samfélagsmiðlum í gær.

Í myndbandinu, sem notast við streituvaldandi undirspil, lýsir Ari því yfir að borgarbúar upplifi ekki sömu öryggistilfinningu og áður og segir að dæmum um grafalvarleg atvik fjölgi. Fylgja með skjáskot úr fréttum þar sem grunaðir gerendur eru erlendir. Bendir forstjórinn fyrrverandi á innflytjendastefnu ríkisins sem sökudólg í þeim efnum. Hvetur Ari fólk til að kjósa Miðflokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum til að hægt sé koma þessum málum í lag í borginni.

Óhætt er að segja að myndband þetta hafi vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum eins og Facebook og TikTok.

„Verið hrædd! Vantreystið nágrönnum ykkar! Kjósið Miðflokkinn…“ skrifar blaðamaðurinn fyrrverandi Atli Þór Fanndal um myndbandið.

„Hvað ætli Miðflokkurinn hyggist fyrir til að koma í veg fyrir að síðmiðaldra íslenskir áhrifakarlar ógni öryggi kvenna í einkasamkvæmum eða á opinberum vettvangi?“ spyr Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi.

Halldór Auðnar Svansson, annar fyrrverandi borgarfulltrúi, skrifar: „Það á greinilega að keyra bara á þessu fram að kosningum. Back to basics. Þegar upp er staðið snýst þessi flokkur um nákvæmlega ekkert annað en en skíta yfir innflytjendur. Ekkert uppbyggilegt, engar lausnir, bara neikvæðar tilfinningar og raus.“

Vekur myndbandið sérstaklega mikla athygli í ljósi þess að Ari var sjálfur innflytjandi í Portúgal fyrr á þessu ári.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

„Ávísun á aukin félagsleg vandamál“
Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár
Innlent

Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína
Heimur

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti
Innlent

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála
Myndir
Menning

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan
Innlent

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

„Kannski hefur núverandi formaður flokksins ekki skilið afstöðu Bandaríkjanna“
Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist
Pólitík

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Loka auglýsingu