Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 2. september vegna rannsóknar á andláti karlmanns á sjötugsaldri sem fannst látinn á heimili í Kópavogi um síðustu helgi.
Frá þessu greinir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í tilkynningu.
Maðurinn kom fyrir Héraðsdóm Reykjaness í dag, þar sem fallist var á kröfu lögreglu um að framlengja gæsluvarðhald hans um fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna.
Hann var handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. ágúst. Með úrskurði dagsins verður hann áfram í haldi til 2. september.
Lögreglan rannsakar andlát karlmanns á sjötugsaldri sem fannst látinn á heimili í Kópavogi um þar síðustu helgi.
Að svo stöddu veitir lögregla ekki frekari upplýsingar um málið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir