1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

10
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

Til baka

Gagnrýnir tvískinnung Loga Einarssonar

Spyr af hverju aðeins rússneskum listamönnum sé úthýst úr Feneyjartvíæringnum

Logi Einarsson
Logi EinarssonKristinn spyr áleitinna spurninga í færslunni
Mynd: Víkingur

Ritstjóri WikiLeaks, Kristinn Hrafnsson, gagnrýnir harðlega afstöðu íslenskra stjórnvalda til þátttöku listamanna á Feneyjartvíæringurinn í nýrri Facebook-færslu.

Í færslunni bendir hann á að á meðan rætt sé um að útiloka rússneska listamenn vegna innrásar Rússlands í Úkraínu, sé ekki beitt sömu mælistiku gagnvart öðrum ríkjum.

Hann nefnir að fulltrúi Íslands á tvíæringnum verði Ásta Fanney Sigurðardóttir og að þátttaka hennar sé óumdeild. Á sama tíma hafi Logi Einarsson, menningarmálaráðherra, hvatt til þess að þátttaka rússneskra listamanna verði sniðgengin vegna stríðsins í Úkraínu. Kristinn skrifar:

„Hópur ungra rússneskra listamanna mun fylla skála landsins af list, það er að segja ef ekki verður strækað á þáttökuna eins og Logi Einarsson, menningarmálaráðherra hefur hvatt til. Af því Pútín sendi heri sína inn í Úkraínu og hefur framið þar óhæfuverk.“

Kristinn bendir hins vegar á að listamenn frá Bandaríkjunum og Ísrael taki einnig þátt, þrátt fyrir að stjórnvöld þeirra landa hafi staðið að hernaðaraðgerðum sem sætt hafa harðri gagnrýni.

Hann nefnir sérstaklega myndhöggvarann Alma Allen sem fulltrúa Bandaríkjanna og ísraelska listamanninn Bela-Simion Fainaru, og spyr hvers vegna ekki sé kallað eftir því að þeir verði útilokaðir á sama hátt.

„Nú hefur Trump, forseti hans ráðist inn í Íran og drepið þar mann og annan og ekki undanskilið á annað hundrað skólastúlkur. Þess utan hefur hann hótað að eyða allri siðmenningu í Íran og væntanlega mun þá öll listsköpun hverfa. Logi ráðherra hefur ekki lýst því yfir að hann vilji að Alma Allen sé meinað að mæta með list sína til Feneyja þrátt fyrir þetta. Á þessari hátíð mun Ísrael einning senda listmanninn Belu-Simion Fainaru sem mun setja þar upp verk sem með strúktúrum og vatni endurspeglar svart tómið sem ku vera vísan í Kabbala dulhyggju gyðingdóms. Benjamin Netanyahu forsætiráðherra Belu-Simion hefur verið að dunda sér við þjóðarmorð og slátrun á tugþúsundum barna. Ég hef ekki séð ákall Loga ráðherra um að listmanninum Belu-Simion sé úthýst frá Feneyjum vegna þessara gjörða pólitískrar forystu í hans heimalandi.“

Í færslunni vitnar hann til rökstuðnings hóps evrópskra ráðherra, þar á meðal Loga, um að þátttaka Rússa geti „varpað upp mynd lögmætis og alþjóðlegrar viðurkenningar“ sem samræmist ekki stríðsrekstri þeirra.

Kristinn spyr að lokum hvort sömu rök eigi ekki við um önnur ríki og hvort vænta megi frekari viðbragða frá ráðherranum:

„Telur Logi ráðherra þá að þáttaka listamanna frá Ísrael og Bandaríkjunum „varpi upp mynd lögmætis og alþjóðlegrar viðurkenningar“ á árásarstríði, stórfelldum stríðsglæpum, aðskilnaðarstefnu, landráni og þjóðarmorði? Eða er von á framhaldstilkynningu frá ráðherra?“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku
Myndband
Heimur

Tvö höfuð eru betri en eitt hjá þessari litlu skjaldböku

Helgi í Góu verður ríkari
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina
Innlent

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina

Móðir vill að horfinn sonur verði úrskurðaður látinn
Innlent

Móðir vill að horfinn sonur verði úrskurðaður látinn

Skrifuðu gróf ummæli undir fullu nafni en vildu ekki ræða þau
Innlent

Skrifuðu gróf ummæli undir fullu nafni en vildu ekki ræða þau

Garðabæjardraumurinn til sölu með heitum og köldum potti
Myndir
Fólk

Garðabæjardraumurinn til sölu með heitum og köldum potti

Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

„Ríkisstjórnin hamast við að moka flórinn eftir þessa sóða, en þeir standa á hliðarlínunni hrópandi ókvæðisorð“
Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Loka auglýsingu