Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hætti að drekka eftir að hafa kjálkabrotið sambýliskonu sína

Fékk sér samt smá að drekka í sumar

Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir alvarlegt ofbeldi gegn sambýlis­konu sinni á heimili þeirra í Reykjavík. Konan hlaut meðal annars tvíbrotinn kjálka í árásinni.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðs­dómi Reykja­víkur. Maðurinn var ákærður fyrir brot í nánu sambandi vegna atviks sem átti sér stað 10. apríl 2025.

Samkvæmt ákæru sló maðurinn sambýlis­konu sína með krepptum hnefa í andlitið. Afleiðingarnar voru þær að hún hlaut tvíbrotinn kjálka vinstra megin auk mars í andliti, munni og munnholi. Var háttsemin talin fela í sér alvarlega ógn við líf, heilsu og velferð konunnar.

Maðurinn játaði brotið skýlaust fyrir dómi. Hann átti ekki sakaferil að baki hér á landi.

Við ákvörðun refsingar var játning mannsins metin honum til málsbóta. Þá lýsti hann eftirsjá og sagðist hafa hætt áfengis­drykkju eftir brotið. Hann hefði þó neytt áfengis í sumar­leyfi í heima­landi sínu og því leitað eftir áfengis­meðferð sem á að hefjast síðar í september. Fyrir dómi kvaðst hann vilja verða betri maður.

Til þyngingar var litið til alvarleika árásarinnar og þess að brotið átti sér stað í nánu sambandi þar sem maðurinn braut gegn trausti og trúnaði brotaþola.

Maðurinn var dæmdur í fimm mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað í tvö ár haldi hann almennt skilorð. Þá var honum gert að greiða 56.510 krónur í sakar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning