1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

5
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

6
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

7
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

8
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

9
Innlent

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“

10
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Til baka

„Hann öskraði af kvölum“

Mummi segir frá hrottalegu slysi á sjó

Mummi Týr
Mummy TýrMummi hefur upplifað eitt og annað

Mummi Týr Þórarinsson er eilífðartöffari sem djöflaðist í gegnum fyrri hluta ævinnar í drykkju, dópi og veseni og var með sjálfsmorðshugsanir í mörg ár. Meðal þess sem hann hefur starfað við á ævinni er sjómennskan en í einkaviðtali Mannlífs lýsir hann meðal annars því er bátsmaðurinn í síðutogaranum Þormóði fótbrotnaði illa. Hér má sjá þanng kafla viðtalsins:

Fótbrotnaði illa

Þær eru margar sögurnar af sjónum.

„Einu sinni, um sautján ára aldur, ráfaði ég niður á bryggju þegar ég vissi að gamli síðutogarinn Þormóður Goði var að fara úr höfn. Það vantaði menn, skipstjórinn benti bara og ég var valinn um borð. Þegar við vorum lagðir af stað tók ég eftir manni sofandi á bekk í matsalnum. Hann var í jakkafötum og með bindi og passaði illa við restina af áhöfninni. Enginn pældi þó í því fyrr en hann vaknaði nokkrum klukkustundum síðar. Þá kom í ljós að hann hafði verið á djammi með einhverjum úr skipinu, sofnað og einfaldlega verið talinn með.

Hann reyndist vera fjölskyldumaður í fullri vinnu annars staðar. Ég gleymi aldrei angistinni í andlitinu á honum þegar hann fór upp í brú til að ná sambandi í gegnum Gufunes og láta vita af sér. Hann sagði lítið allan túrinn.

Í sama túr fengum við brot. Ég var úti á dekki þegar það reið yfir. Menn flugu um eins og tuskur og ég sá bátsmanninn kastast í loftköstum og lenda undir togspilinu. Það var hrein heppni að enginn fór í sjóinn. Veðrið var snarvitlaust og við vorum að ganga frá til að sigla í var.

Í mínum huga var bátsmaðurinn eldgamall en líklega hefur hann verið miðaldra. Hann fótbrotnaði illa og var dreginn öskrandi af kvölum inn í matsal. Sjúkrakassinn var auðvitað löngu tæmdur af verkjalyfjum. Við skiptumst á að halda fætinum kyrrum í óveðrinu næstu klukkutímana þar til við náðum landi og sjúkrabíll tók við honum.

Ég man líka eftir loðnuskipi þar sem við vorum að leggja nótina í miklum veltingi. Einn háseti fékk snurpuhring í ennið og rotaðist. Engir hjálmar voru í boði. Hann reis upp, ringlaður og alblóðugur og með ljótan skurð á enninu. Skipstjórinn kom hlaupandi með einhvers konar heftibyssu, skellti sárinu saman og svo var haldið áfram. Engin miskunn. Þetta varð svo bara enn ein sagan til að segja á næsta djammi.“

Mummi Týr var um tíma á varðskipinu Tý. Fyrsta sjóferðin hans með Tý var fyrsti túr skipsins eftir að vinur hans var drepinn um borð.

„Þetta var í öllum fjölmiðlum. Hann var stunginn og sá sem stakk hann henti sér í sjóinn. Þetta er gamalt sakamál. Þetta var mjög skrautlegur túr að því leytinu til að mórallinn um borð var náttúrlega hryllilegur. Maður hafði verið stunginn og drepinn og einhver geðveiki í gangi. Vinur minn hafði reynt að stoppa gaurinn með hnífinn. Ég sem götubarn var náttúrlega búinn að vera í þessum heimi lengi en það sem hafði áhrif á mig var hvað það var vondur mórall um borð. Skiljanlega. Ég syrgði vin minn og var allt í einu kominn á staðinn þar sem hann var drepinn. Sennilega hefur gengið illa að manna skipið þannig að ég fékk auðveldlega pláss eftir þetta atvik. Þetta var ekki góður túr.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Japanir kepptu í svefni
Heimur

Japanir kepptu í svefni

„Þetta var skemmtileg keppni“
Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu
Heimur

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

Salmonella greindist í innfluttu kryddi
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Pólitík

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar
Pólitík

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang
Innlent

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu
Myndir
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

Var reist árið 2007
Látinn skákmeistari, dularfullur jakki og draumur sem fór úr böndunum
Fólk

Látinn skákmeistari, dularfullur jakki og draumur sem fór úr böndunum

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

Landsliðsmaður Íslands á von á barni
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

Loka auglýsingu