1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

10
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Til baka

Höttur dregur sig úr Gatorade-bikarnum vegna ferðakostnaðar

„Þetta er veruleiki sem félög á landsbyggðinni þurfa reglulega að glíma við“

Vilhjálmsvöllur
VilhjálmsvöllurAnnar tveggja knattspyrnavalla sem Höttur notast við
Mynd: Múlaþing

Höttur hefur ákveðið að draga lið sitt úr Gatorade bikarnum vegna ágreinings um skiptingu ferðakostnaðar og segir stjórn Rekstrarfélags Hattar núverandi regluverk ósanngjarnt gagnvart landsbyggðarfélögum.

Í tilkynningu frá stjórn Rekstrarfélagsins segir að ákvörðunin hafi verið tekin eftir „mikla umhugsun“ og megi rekja til bikarleiks síðasta sumars þar sem ferðakostnaður félagsins vegna flugs og bílaleigubíla hafi numið rúmlega einni milljón króna.

Þá þurftu leikmenn og þjálfarar að gista eftir leikinn þar sem um kvöldleik var að ræða, en sá kostnaður féll ekki undir reglur um ferðakostnað.

Stjórn félagsins segir að einnig hafi verið aflað tilboðs í rútuferð milli Egilsstaðir og Reykjavík sem hafi hljóðað upp á eina milljón króna. Slík ferð hefði þó þýtt að leikmenn þyrftu bæði að leika sama dag og þeir sætu í um átta klukkustunda rútuferð, auk þess að missa tvo daga úr vinnu.

„Þetta er veruleiki sem félög á landsbyggðinni þurfa reglulega að glíma við,“ segir í tilkynningunni.

Fengu aðeins 250 þúsund krónur greiddar

Samkvæmt stjórn Hattar fengust aðeins 250 þúsund krónur greiddar eftir nær árs langan ágreining milli félaganna vegna ferðakostnaðar síðasta sumars.

Vísað er til reglugerðar Knattspyrnusamband Íslands þar sem segir að ferðakostnaði skuli skipt jafnt milli liða, en að aðkomulið skuli gæta hagkvæmni í ferðamáta sínum.

Stjórn Hattar segir þó að „ekki fari saman hljóð og mynd“ ef félög geti í raun sjálf ákveðið hvort og að hvaða marki þau taki þátt í kostnaðinum.

„Fordæmið sem þessu fylgir er varasamt og sérstaklega þungt fyrir félög sem sjá fram á löng og kostnaðarsöm ferðalög í flesta leiki,“ segir í yfirlýsingunni.

Leikurinn gegn Haukum hefði kostað allt að 1,8 milljónir

Höttur átti að mæta Haukar í bikarnum á miðvikudag, en stjórn félagsins segir áætlaðan kostnað vegna flugs og bílaleigubíla fyrir þann leik hafa verið um 1,3 milljónir króna.

Þar sem um kvöldleik á miðri viku var að ræða hefði einnig bæst við gisting og vinnutap leikmanna og þjálfara. Heildarkostnaður hefði því getað numið 1,5 til 1,8 milljónum króna.

Stjórnin segir sjálfboðaliða félagsins hvorki hafa tíma né orku til að standa í innheimtum vegna slíks kostnaðar og telur eðlilegt að KSÍ hafi milligöngu um greiðslur í stað þess að félög þurfi sjálf að leysa úr slíkum málum sín á milli.

Tekið er sérstaklega fram að Haukar beri enga ábyrgð á ákvörðuninni en hafi þó sýnt stöðu Hattar skilning.

„Þegar allt er lagt saman telur stjórn Rekstrarfélags Hattar fjárhagslega óábyrgt að taka þátt í keppninni á meðan regluverkið er ekki skýrara og ekki er tryggt að kostnaði sé skipt með sanngjörnum hætti milli félaga,“ segir að lokum í yfirlýsingunni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti
Myndband
Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti

„Hann þarf að læra af þessu.“
Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku
Sport

Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli
Myndir
Sport

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð
Sport

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð

Loka auglýsingu