Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels

Tölfræði­legur stórsigur

Samúel Guðmundsson, Piers Morgan og Shmuleys Boteach
Samúel Guð­munds­son, Piers Morgan og Shmuleys Boteach Framkoma Samúels stórjók áhuga á Íslandi Mynd: Samsett mynd

Kristinn Hrafnsson, fjölmiðla­maður, birti athyglis­verða greiningu á samfélags­miðlum þar sem hann skoðaði viðbrögð alþjóða­samfélagsins við viðtali Piers Morgan við Íslendinginn Samúel Guðmundsson á YouTube. Kristinn notaði gervi­greind til þess að taka saman yfir fimm þúsund athuga­semdir og eru niður­stöðurnar afgerandi.

„Tölfræði­lega sigraði Samúel með yfir­burðum, 91% studdu hann með skýrum hætti,“ skrifar Kristinn og vísar til þess að hann hafi látið greina 5.700 athuga­semdir undir þættinum, sem þá höfðu fengið um 50 þúsund „læk“.

Ókeypis landkynning og áhugi á ferðalögum

Í færslunni birtir Kristinn samantekt gervi­greindarinnar, en þar kemur fram að framkoma Samúels hafi varpað „óvenju jákvæðu ljósi á Ísland“ og að áhorf­endur hafi tengt hana við húmor og virðingu fyrir landinu.

Greiningin sýnir að viðtalið virðist hafa virkað sem öflug land­kynning. Vel á annað hundrað athuga­semdir fjölluðu um áhuga á að heimsækja Ísland, ferðast þangað eða jafnvel flytja. Samkvæmt Kristni sagði vinsælasta athugasemdin undir mynd­bandinu einfald­lega: „Samúel var rétt í þessu að stóruka ferðamanna­strauminn til Íslands.“

Skorar á Íslandsstofu að grípa inn í

Samúel þurfti að taka sér leyfi frá störfum til þess að undirbúa sig fyrir þáttinn, og telur Kristinn að það eigi að umbuna honum fyrir vikið. Hann lýkur færslu sinni á afgerandi áskorun til opinberra aðila:

„Mér sýnist einboðið að Íslands­stofa bæti honum það vinnutap – og gott betur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum