Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

„Hvernig dílar maður við gamla freka karla?“

Kristinn Árni opnar sig um margskonar málefni

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson
Kristinn Árni Lár Hró­bjarts­son Mynd: Golli

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson er viðskipta­fræðingur með mikinn áhuga á tónlist og hefur á ferli sínum meðal annars starfað hjá Plain Vanilla, Gangverki og alþjóð­lega uppboðs­húsinu Sotheby's. Síðastliðið haust stofnaði hann, ásamt frumkvöðlinum Davíð Helgasyni, hugveituna Vörðu sem einbeitir sér að málefnum tengdum þjóðar­öryggi og viðnáms­þrótti samfélagsins. Varða stendur reglulega fyrir viðburðum og umræðu á þessu sviði. Í sumar stóð hugveitan jafnframt fyrir sinni fyrstu alþjóð­legu ráðstefnu hér á landi, Reykjavik Security Forum.

Í ítarlegu viðtali við Mannlíf opnar hann sig um margskonar málefni meðal annars stöðu Íslands í öryggis­málum.

Gamlir frekir karlar

Heims­myndin er breytt. Stað­setning Íslands má segja mitt á milli Evrópu og Banda­ríkjanna getur í sumum tilfellum verið góð, svo sem þegar kemur að málefnum norðurslóða og má nefna væntanlega umskipunar­höfn á Austur­landi, en svo er ekki alltaf.

„Fyrir öryggis­hagsmuni Íslands er óheppilegt að þetta sé orðið hernaðarlegt áhugamál stórvelda. Það væri betra fyrir okkur ef það væri áfram frosið á norðurslóðum og enginn að pæla í þessu. Ég tala stundum um að við séum að fara frá því að vera eins og brú á milli tveggja vinveittra stórvelda - Banda­ríkjanna og Evrópu - og yfir í að vera hringtorg óvin­veittra stórvelda. Ég held að það sé ekki endilega frábært fyrir okkur að vera hringtorg. Ef við horfum á hernaðar­bröltið hjá stór­veldunum og síðan loftslags­breytingarnar og mögulegar hamfarir tengdum þeim þá þarf ekki mikið að fara úrskeiðis til að þetta endi illa.

Í fyrstu skýrslunni sem við gáfum út fórum við yfir skemmdar­verk Rússa á innviðum í Evrópu - við vorum að vekja athygli á því að í raun er allt sem þarf til þess til staðar á Íslandi. Við erum með dreifða innviði, við erum með gamla innviði og við erum með aðgengi­lega innviði og það þarf skipulagða glæpahópa sem hægt er að fjarstýra í gegnum Telegram eða borga þeim í bitcoin fyrir að gera eitthvað rugl. Það er hér allt til staðar og nóg af því. Það skortir væntanlega vilja til að gera eitthvað. Það hefði ekkert upp á sig ímynda ég mér en það væri ekki mikið mál að setja allt á annan endann á Íslandi.

Við vitum að það hafa verið allavega tvær skipulagðar netárársir af hendi Rússa á Íslandi - í tengslum við leiðtoga­fund Evrópu­ráðsins 2023 og svo Frétta­blaðið þegar í því birtist mynd af úkraínskum hermönnum að stappa á rússneska fánanum í kringum stríðið. Þetta er ekkert sérstak­lega flókið - það eru bara vondir karlar þarna úti - mesmegnis karlar sem eru 70+ virðist vera - sem eru með allt aðra hugmynd um hvernig heimurinn á að virka heldur en við. Það er það sem skiptir máli í þessu finnst mér. Og hvernig dílar maður við gamla freka karla? Við þurfum að geta passað upp á okkar út frá því sem skiptir okkur máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“