Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Illugi Jökulsson óttast um stöðu Íslands

„Yrðum eins og krækiber í helvíti“

Illugi Jökulsson
Illugi Jök­uls­son spáir hruni EES-samn­ings­ins og hrað­ferð Norð­manna inn í ESB

Rithöfundurinn og fjölmiðla­maðurinn Illugi Jökulsson telur að Íslendingar eigi tafar­laust að kanna grundvöll fyrir eigin aðildar­samningi við Evrópu­sambandið (ESB). Hann óttast að breytt heimsmynd og vaxandi yfir­gangur Banda­ríkjanna muni knýja nágranna­þjóðir okkar til að leita nær ESB, sem gæti skilið Ísland eftir í algjörri einangrun.

Þetta kemur fram í færslu á Illuga þar sem hann lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun alþjóða­mála.

Treysta ekki lengur Bandaríkjunum

Illugi bendir á að framkoma Banda­ríkjanna gagnvart nágranna­þjóðum okkar sé farin að breyta pólitísku landslagi á Norður­löndum og í Norður-Ameríku. „Hótanir og yfir­gangur Banda­ríkjanna í garð Grænlands eru eitt. Kröfur Banda­ríkjanna um að þau fái að ráða innlands­málum í Kanada eru annað,“ skrifar Illugi og fullyrðir að Atlantshafs­bandalagið (NATÓ) hafi veikst stórlega. „Engin þjóð getur lengur treyst Banda­ríkjunum.“

Hann bætir því við að þetta ástand muni ekki breytast að neinu ráði þó að Donald Trump láti á endanum af embætti.

Spáir hraðferð Noregs inn í ESB

Að mati Illuga eru stjórn­völd í Kanada og Noregi meðvituð um þessa nýju stöðu. Kanada­menn vilji nú ná miklu nánari tengslum við Evrópu­sambandið og sömu sögu sé að segja af Norð­mönnum, sem sjái fram á að geta ekki treyst á Banda­ríkin til að verja sig gegn Rússum og Kínverjum.

„Það er alveg deginum ljósara að innan örfárra missera mun hefjast í Noregi sterk hreyfing fyrir því að ganga í Evrópu­sambandið,“ skrifar Illugi og telur að Norðmenn gætu farið „sann­kallaða hraðferð“ inn í sambandið.

EES-samningurinn gæti fallið úr gildi

Verði sú sviðsmynd að veruleika að Noregur gangi í ESB, telur Illugi að staða Íslands verði mjög veik og að Evrópska efnahags­svæðið (EES) muni líða undir lok.

„Þá yrðum við eins og krækiber í helvíti, EES-samningurinn félli úr gildi og við yrðum að lúpast inn í Evrópu­sambandið á frakka­löfum Norðmanna,“ segir Illugi.

Hann lýkur færslu sinni á þeirri spurningu hvort ekki sé skynsamlegra fyrir Íslendinga að grípa frum­kvæðið á meðan staða landsins er sterk: „Væri ekki miklu skynsamlegra — nú þegar við erum í mun sterkari stöðu — að kanna hvað gæti komið út úr okkar eigin aðildar­samningi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning