1
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar bíla sem geta skyndilega misst afl á ferð

2
Innlent

„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

3
Innlent

Íslenskur rannsakandi hlýtur 200 milljóna styrk

4
Fólk

Dorrit sýnir ótrúlegan liðleika

5
Innlent

Harðar deilur um sniðgöngu íslenskra vara

6
Fólk

Konurnar sem leiða þarabyltinguna

7
Fólk

Selja krúttlega smáíbúð með palli

8
Innlent

Sendiráð Kína kynnir „land framtíðarinnar“ fyrir Íslendingum

9
Innlent

Heimskortið sem þú þekkir er rangt

10
Innlent

Þyrla gæslunnar flutti fjóra til Reykjavíkur eftir alvarlegt slys á Hringveginum

Til baka

Íslenski fjárhundurinn Kátur var nær dauða en lífi

Í lífshættu vegna nikótínpúða

Íslenski fjárhundurinn Kátur
Tvísýnt með líf Káts eftir heimsókn í lokaðan garð
Mynd: Skjáskot

Hundar geta veikst alvarlega og jafnvel dáið eftir að hafa innbyrt nikótínpúða sem hent hefur verið á víðavangi. Íslenski fjárhundurinn Kátur var hætt kominn á dögunum eftir að hafa étið slíkan púða, en dýralæknar vara sterkt við eitrunaráhrifum nikótíns og sætuefna á borð við xylitol.

Eigandi Káts, Hafdís Brynja Guðmundsdóttir, segir í frétt á RÚV að atvikið hafa átt sér stað þegar fjölskyldan var í heimsókn þar sem hundurinn fékk að hlaupa um í lokuðum garði. Garðurinn liggur að gangstétt þar sem algengt er að fólk fleygi notuðum púðum. Þegar fjölskyldan bjóst til brottfarar fór að bera á óvenjulegri hegðun hjá Káti.

Skömmu síðar versnaði líðan hans til muna. Hann átti erfitt með að standa í fæturna og byrjaði að æla. Fjölskyldan áttaði sig fljótt á alvarleika málsins og flýtti sér með hann á dýraspítala, þar sem dælt var upp úr honum. Hafdís segir að það hafi verið tvísýnt með líf hundsins og ljóst sé að hann hefði dáið ef hann hefði ekki fengið tafarlausa læknishjálp. Kátur náði að endingu fullri heilsu en eigendur hans eru nú mun meira á varðbergi þar sem nikótínpúðar sjást víða á förnum vegi.

Halldóra Hrund Guðmundsdóttir, dýralæknir á Dýraspítalanum í Víðidal, staðfesti við RÚV að reglulega komi tilfelli til þeirra þar sem grunur leikur á nikótíneitrun hjá hundum, og grunur sé um að dýr hafi dáið af þeim sökum. Hún útskýrir að hundar hafi mun minna þol fyrir nikótíni en fólk. Eitrunin lýsir sér fyrst með uppköstum og niðurgangi en getur fljótt þróast yfir í alvarlegan skjálfta og krampa.

Dýralæknirinn bendir jafnframt á að nikótínið sé ekki eina hættan sem fylgir púðunum. Þeir innihalda oft gervísætuefnið xylitol, sem er bráðhættulegt hundum og getur valdið lífshættulegu blóðsykursfalli og lifrarskemmdum. Halldóra skorar á almenning að sýna ábyrgð og hætta að henda púðunum á víðavangi, enda sé um stórhættulegan úrgang fyrir dýralíf að ræða.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kötturinn sem stýrði bæ í 20 ár
Heimur

Kötturinn sem stýrði bæ í 20 ár

Sannleikurinn á bak við kattar-bæjarstjórann Stubbs í Talkeetna
Stórt og stæðilegt hús í Grafarvogi til sölu
Myndir
Innlent

Stórt og stæðilegt hús í Grafarvogi til sölu

Fullt tungl í Fantasíusalnum þegar Úlfarnir mættu
Myndir
Menning

Fullt tungl í Fantasíusalnum þegar Úlfarnir mættu

Þyrla gæslunnar flutti fjóra til Reykjavíkur eftir alvarlegt slys á Hringveginum
Innlent

Þyrla gæslunnar flutti fjóra til Reykjavíkur eftir alvarlegt slys á Hringveginum

Heimskortið sem þú þekkir er rangt
Innlent

Heimskortið sem þú þekkir er rangt

Gripinn glóðvolgur við dósastuld
Innlent

Gripinn glóðvolgur við dósastuld

Dorrit sýnir ótrúlegan liðleika
Myndband
Fólk

Dorrit sýnir ótrúlegan liðleika

Sendiráð Kína kynnir „land framtíðarinnar“ fyrir Íslendingum
Myndband
Innlent

Sendiráð Kína kynnir „land framtíðarinnar“ fyrir Íslendingum

Settu upp stafræna „vörulista“ með úkraínskum börnum til þvingaðra ættleiðinga
Heimur

Settu upp stafræna „vörulista“ með úkraínskum börnum til þvingaðra ættleiðinga

Harðar deilur um sniðgöngu íslenskra vara
Innlent

Harðar deilur um sniðgöngu íslenskra vara

Toyota á Íslandi innkallar bíla sem geta skyndilega misst afl á ferð
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar bíla sem geta skyndilega misst afl á ferð

Selja krúttlega smáíbúð með palli
Myndir
Fólk

Selja krúttlega smáíbúð með palli

Íslenskur rannsakandi hlýtur 200 milljóna styrk
Innlent

Íslenskur rannsakandi hlýtur 200 milljóna styrk

Innlent

Íslenski fjárhundurinn Kátur var nær dauða en lífi
Innlent

Íslenski fjárhundurinn Kátur var nær dauða en lífi

Í lífshættu vegna nikótínpúða
Sendiráð Kína kynnir „land framtíðarinnar“ fyrir Íslendingum
Myndband
Innlent

Sendiráð Kína kynnir „land framtíðarinnar“ fyrir Íslendingum

Stórt og stæðilegt hús í Grafarvogi til sölu
Myndir
Innlent

Stórt og stæðilegt hús í Grafarvogi til sölu

Þyrla gæslunnar flutti fjóra til Reykjavíkur eftir alvarlegt slys á Hringveginum
Innlent

Þyrla gæslunnar flutti fjóra til Reykjavíkur eftir alvarlegt slys á Hringveginum

Heimskortið sem þú þekkir er rangt
Innlent

Heimskortið sem þú þekkir er rangt

Gripinn glóðvolgur við dósastuld
Innlent

Gripinn glóðvolgur við dósastuld

Loka auglýsingu