1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

8
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

9
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

10
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Til baka

Íslenski hópurinn klár fyrir Santiago

Sögulegir Heimsleikar

Keppendur Special Olympics
23 keppendur valdir á heimsleika Special Olympics 2027
Mynd: Mynd/skjáskot frá fréttablaði Íþróttafélags fatlaðra

Endanlegt val á þeim íþróttamönnum sem munu fara út sem fulltrúar Íslands á heimsleika Special Olympics árið 2027 liggur nú fyrir. Leikarnir verða haldnir í Santiago, höfuðborg Chile, dagana 16. til 24. október 2027. Special Olympics á Íslandi fékk úthlutað ákveðnum keppniskvóta og fór val fram í kjölfar tilnefninga.

Íslenski hópurinn samanstendur af 23 keppendum sem koma frá níu íþróttafélögum og þremur golfklúbbum. Breidd hópsins er mikil og eiga mörg sveitarfélög fulltrúa, en keppendurnir koma frá Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Flúðum, Selfossi, Vestmannaeyjum, Stykkishólmi og Akureyri.

Fulltrúar Íslands munu keppa í eftirfarandi átta íþróttagreinum:

  • Áhaldafimleikum
  • Badminton
  • Boccia
  • Frjálsum íþróttum
  • Golfi
  • Lyftingum
  • Nútímafimleikum
  • Sundi

Áhersla á ástundun og félagsfærni

Ólíkt Paralympics og Ólympíuleikum fatlaðra er íþróttaárangur eða mælanleg úrslit ekki mælikvarði við val á keppendum. Mótið byggir á öðru keppnisformi þar sem keppendum er skipt í flokka eftir styrkleika, og hljóta allir þátttakendur verðlaunapeninga eða verðlaunaborða fyrir frammistöðu sína.

Við val á hópnum var fylgt ströngum viðmiðum Special Olympics á Íslandi. Forgang áttu þeir íþróttamenn sem ekki hafa áður tekið þátt í heimsleikum. Jafnframt var litið til framfara, góðrar mætingar og áhuga á æfingum. Þá er þess krafist að keppendur hafi náð 15 ára aldri þegar leikarnir hefjast haustið 2027.

Ríkar kröfur voru gerðar til íþróttamannslegrar framkomu og félagslegrar fyrirmyndar. Vegna þess hve umfangsmikið og krefjandi verkefnið erlendis er, er jafnframt horft til þess að keppendur séu heilsuhraustir og sjálfbjarga, enda er gert ráð fyrir að hver þjálfari hafi umsjón með fjórum keppendum á leikunum.

NES, Reykjanesbæ

  • Jóel Máni Elorm Þórisson, badminton
  • Lena Kristín Hermannsdóttir, boccia

Ármann, Reykjavík

  • Sigríður Sigurjónsdóttir, lyftingar
  • Anna Karen Jafetsdóttir, frjálsar íþróttir
  • Kristján Jónsson, frjálsar íþróttir

Badmintonfélag Hafnarfjarðar

  • Dalrós Líf Ólafsdóttir

Fjörður, Hafnarfirði

  • Sigurður Reynir Ármannsson, lyftingar
  • Elsa Sigvaldadóttir, frjálsar íþróttir
  • Daníel Smári Hafþórsson, frjálsar íþróttir
  • Kristrún Helga Þórðardóttir, sund
  • Frosti Magnússon, sund

Ösp, Reykjavík

  • Ýmir Snær Bang Hlynsson, sund
  • Nína Margrét Ingimarsdóttir, nútímafimleikar
  • María Gísladóttir, nútímafimleikar

Gerpla, Kópavogi

  • Katrin Ling Yu Þórbergsdóttir, áhaldafimleikar
  • Hilmir Sveinsson, áhaldafimleikar
  • Viktor Skúli Þórarinsson, áhaldafimleikar

Óðinn Akureyri

  • Kristín Erna Jakobsdóttir, sund

Suðri Selfossi / golfklúbburinn Flúðum

  • Matthías Máni Elíasson, lyftingar
  • Telma Þöll Þorbjörnsdóttir, golf

Golfklúbbur Akureyrar / EIK

  • Elías Eyþór Þórarinsson, golf

Golfklúbburinn Mostri, Stykkishólmi

  • Einar Marteinn Bergþórsson, golf

Ægir, Vestmannaeyjum

  • Birgir Reimar Rafnsson, boccia

Sögulegir Heimsleikar Special Olympics í Chile

Slíkir leikar hafa aldrei áður verið haldnir í Suður-Ameríku, en tæplega 500 daga niðurtalning hófst nýverið í samstarfi við alþjóðasamtök Special Olympics (SOI) og stjórnvöld í Chile. Gífurlegur fjöldi þátttakenda og gesta, en áætlað er að leikarnir muni laða að rúmlega 500.000 áhorfendur og skapi gríðarlega stemningu á keppnisstöðum. Helstu tölur bera vott um umfang viðburðarins:

  • 6.000 keppendur mæta til leiks.
  • 170 þátttökulönd eiga fulltrúa á leikunum.
  • 2.000 þjálfarar og aðstoðarfólk fylgja keppnisliðunum.
  • 6.000 aðstandendur íþróttafólksins munu ferðast til Santiago.

Glæsileg golfkeppni á virtu svæði

Auk aðalleikvangsins verður keppt á öðrum fyrsta flokks íþróttasvæðum í borginni. Þar á meðal er hinn kunni klúbbur Prince of Wales Country Club Campo de Golf, en þar mun fara fram keppni í golfi (Level 4 og Level 5) þar sem reynir á mikla nákvæmni og tækni keppenda.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti
Myndband
Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti

„Hann þarf að læra af þessu.“
Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku
Sport

Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli
Myndir
Sport

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð
Sport

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð

Loka auglýsingu