
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir 46 brot, þar af 45 þjófnaðarbrot og eina tilraun til þjófnaðar, sem eiga að hafa verið framin á höfuðborgarsvæðinu á rúmlega eins árs tímabili. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðar málið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Málið verður þingfest 1. október næstkomandi.
Samkvæmt ákærunni hófst meint brotahrina í desember 2024 þegar maðurinn er sakaður um að hafa stolið Samsung Galaxy A35-farsíma, að verðmæti tæplega 70 þúsund krónur, úr Elko á Granda. Í apríl árið eftir er honum meðal annars gefið að sök að hafa stolið tveimur ilmvötnum úr Hagkaupum í Smáralind og öðrum ilmvötnum úr Hagkaupum í Garðabæ.
Ákæran nær til fjölmargra verslana á höfuðborgarsvæðinu og er maðurinn meðal annars sakaður um að hafa stolið ítrekað úr Krónunni, Bónus, Nettó, Elko og Lyfju. Meðal þess sem hann á að hafa tekið eru kjúklingabringur, nautakjöt, ilmvötn, raftæki, fatnaður, verkfæri, húðvörur, vítamín og ýmiss konar matvara.
Eitt verðmætasta einstaka þjófnaðarbrot ákærunnar varðar húðvörur að verðmæti rúmlega 238 þúsund krónur sem maðurinn er sakaður um að hafa tekið úr Lyfju í Lágmúla í nóvember 2025.
Manninum er einnig gefin að sök tilraun til þjófnaðar úr Ferro Zink í Hafnarfirði í mars síðastliðnum. Þar á hann að hafa sett verkfæri að verðmæti rúmlega 159 þúsund krónur í tösku en verið stöðvaður af starfsmönnum áður en hann komst úr versluninni.
Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar vegna málsins.