1
Innlent

Skellir hurðinni: „Þá verðið að sjá um ykkur sjálf“

2
Innlent

Össur hjólar í RÚV eftir sögulegan blaðamannafund

3
Fólk

Líffræðingur varar við megrunarlyfjum

4
Innlent

„Það er ykkar Ísland – ekki mitt“

5
Fólk

Falinn fjársjóður í botnlanga til sölu

6
Innlent

Lögregla boðar frekari upplýsingar eftir alvarlegt slys

7
Minning

Halldór Hallgrímsson er látinn

8
Innlent

Segir landsmenn stara og svara manni með einföldu „já“

9
Peningar

Nítján á Skagnum með fulla vasa fjár

10
Pólitík

Mikil gleði og skálar á lofti hjá Nei-fólkinu

Til baka

Kemur til Íslands til að veita innsýn í hryllinginn á átakasvæðum

Hittu forseta palestínska Rauða hálfmánans í Reykjavík

Dr. Younis Al-Khatib
Dr. Younis Al-Khatib til Íslands
Mynd: Rauði krossinn

Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans (PRCS), verður á Íslandi dagana 1.-5. september næstkomandi í boði Rauða krossins á Íslandi. Í heimsókninni mun Dr. Al-Khatib m.a. hitta Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og eiga fundi með fulltrúum utanríkismálanefndar, landsnefndar um mannúðarrétt og þróunarsamvinnunefndar.

Fimmtudaginn 3. september mun Dr. Al-Khatib svo halda opinn fyrirlestur í sal Þjóðminjasafnsins. Þar mun hann fjalla um stöðu mannúðarmála í Palestínu og þær áskoranir sem einkenna starf palestínska Rauða hálfmánans. Landsnefnd um mannúðarrétt og Alþjóðamálastofnun standa að viðburðinum sem ber yfirskriftina Vernd og mannúð á átakasvæðum: Áskoranir og árangur í starfi palestínska Rauða hálfmánans og hefst hann kl. 12. Fyrirlesturinn er opinn öllum meðan húsrúm leyfir og verður sömuleiðis sendur út í beinu streymi.

Að kvöldi föstudagsins 4. september verður Dr. Al-Khatib viðstaddur sérstaka sýningu á kvikmyndinni The Voice of Hind Rajab í Bíó Paradís. Starfsfólk neyðarlínu palestínska Rauða hálfmánans fékk í byrjun árs 2024 símtal frá sex ára stúlku sem var í bíl með látnum skyldmennum og skothríð í bakgrunninum. Í myndinni eru raunverulegar upptökur frá síðasta samtali hennar við starfsfólk neyðarlínunnar og gefur hún því óvenjulega innsýn í þann hrylling sem börn og fullorðnir upplifa á átakasvæðum. Dr. Al-Khatib mun flytja stutt erindi að sýningu lokinni og sitja fyrir svörum áhorfenda.

Frekari upplýsingar um sýninguna og miðasölu.

Um Dr. Younis Al-Khatib

Dr. Younis Al-Khatib hefur verið forseti palestínska Rauða hálfmánans frá árinu 2000. Hann hefur þó starfað í þágu félagsins mun lengur eða allt frá árinu 1982 er hann gerðist fyrst sjálfboðaliði. Síðan þá hefur hann gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum innan félagsins, þar á meðal sem forstjóri palestínska sjúkrahússins í Kaíró, sem yfirmaður heilbrigðisáætlana og mannauðsmála og framkvæmdastjóri.

Dr. Al-Khatib hefur einnig verið öflugur í alþjóðastarfi hreyfingarinnar í áratugi. Hann sat í stjórn Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) á árunum 2017–2022 og hefur auk þess átt sæti í ýmsum nefndum og vinnuhópum á vegum hreyfingarinnar í gegnum tíðina. Hann er menntaður í viðskipta-, lýðheilsu- og stjórnunarfræðum og hefur hlotið heiðursdoktorsgráðu við Hanseo-háskóla í Suður-Kóreu.

Um palestínska Rauða hálfmánann

Palestínski Rauði hálfmáninn sinnir víðtæku og lífsbjargandi mannúðarstarfi. Félagið rekur m.a. neyðarlínu, sjúkrabíla, sjúkrahús og heilsugæslustöðvar og gegnir stóru hlutverki í dreifingu neyðaraðstoðar. Líkt og í öðrum landsfélögum hreyfingarinnar eru sjálfboðaliðar burðarásinn í allri þjónustu sem veitt er.

Frá október 2023 hefur palestínski Rauði hálfmáninn sinnt lykilhlutverki í veitingu mannúðaraðstoðar á Gaza við gífurlega erfiðar aðstæður, ferðatakmarkanir, hömlur á flutningi nauðsynlegra hjálpargagna og óöruggs ástands. Yfir 30 starfsmenn og sjálfboðaliðar palestínska Rauða hálfmánans hafa verið drepnir við störf sín á Gaza. Tveir hafa verið drepnir á Vesturbakkanum á sama tímabili.

Rauði krossinn á Íslandi hefur stutt starfsemi palestínska Rauða hálfmánans um árabil og mun halda því áfram.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Ef krónan er svona mikilvæg ættu stærstu fyrirtækin líka að nota hana“
Innlent

„Ef krónan er svona mikilvæg ættu stærstu fyrirtækin líka að nota hana“

„Fylgið sigrinum eftir“
Nakinn sendill mætti með matinn að dyrum fjölskyldu
Heimur

Nakinn sendill mætti með matinn að dyrum fjölskyldu

„Svona fer sagan með menn sem svíkja sín prinsipp, kæri Stefán“
Innlent

„Svona fer sagan með menn sem svíkja sín prinsipp, kæri Stefán“

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum
Landið

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum

Grunnskólakennari barðist af hörku við hákarl
Heimur

Grunnskólakennari barðist af hörku við hákarl

Er retínól málið fyrir þig eða ertu að eyðileggja húðina?
Fólk

Er retínól málið fyrir þig eða ertu að eyðileggja húðina?

Þorgrímur dregur upp dökka mynd af nýjum aðgerðum borgarinnar
Innlent

Þorgrímur dregur upp dökka mynd af nýjum aðgerðum borgarinnar

Lögregla boðar frekari upplýsingar eftir alvarlegt slys
Innlent

Lögregla boðar frekari upplýsingar eftir alvarlegt slys

Selja arkitektaperlu í Seljahverfi
Myndir
Fólk

Selja arkitektaperlu í Seljahverfi

Tímamót í fjölmiðlasögu
Innlent

Tímamót í fjölmiðlasögu

Nítján á Skagnum með fulla vasa fjár
Peningar

Nítján á Skagnum með fulla vasa fjár

Halldór Hallgrímsson er látinn
Minning

Halldór Hallgrímsson er látinn

Innlent

„Ef krónan er svona mikilvæg ættu stærstu fyrirtækin líka að nota hana“
Innlent

„Ef krónan er svona mikilvæg ættu stærstu fyrirtækin líka að nota hana“

„Fylgið sigrinum eftir“
Lögregla boðar frekari upplýsingar eftir alvarlegt slys
Innlent

Lögregla boðar frekari upplýsingar eftir alvarlegt slys

„Svona fer sagan með menn sem svíkja sín prinsipp, kæri Stefán“
Innlent

„Svona fer sagan með menn sem svíkja sín prinsipp, kæri Stefán“

Kemur til Íslands til að veita innsýn í hryllinginn á átakasvæðum
Innlent

Kemur til Íslands til að veita innsýn í hryllinginn á átakasvæðum

Þorgrímur dregur upp dökka mynd af nýjum aðgerðum borgarinnar
Innlent

Þorgrímur dregur upp dökka mynd af nýjum aðgerðum borgarinnar

Loka auglýsingu