1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

5
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

6
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

7
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

8
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

9
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

10
Innlent

Endaði á sjúkrahúsi eftir slys

Til baka

Klara í Nylon er framúrskarandi

Bifröst
Mynd: Fjölmennasta útskrift í sögu skólans

Aldrei í sögu Háskólans á Bifröst hefur annars eins fjöldi verið útskrifaður og síðastliðinn laugardag. Alls voru 279 háskólanemendur brautskráðir; 39 nemendur úr Háskólagátt, 65 úr grunnnámi og 175 úr meistaranámi. Ef litið er til deildaskiptingar þá brautskráðust alls 59 nemendur frá félagsvísindadeild, 25 frá lagadeild og 156 frá viðskiptadeild. Þar af voru 208 konur og 71 karl. Nálgast má nánari upplýsingar um brautskráninguna hér.

„Dagurinn er sannarlega sigurdagur fyrir ykkur, útskriftarefnin, hvert og eitt, og hann er uppskeruhátíð fyrir Háskólann á Bifröst,“ sagði dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor er hún ávarpaði útskriftarnemendur og aðra hátíðargesti. „ Við fögnum í dag árangrinum af starfi og ástundun undanfarinna missera. Tímabils sem vafalaust hefur markast af bæði áreynslu og ánægju, stundum svita og tárum, en ekki síður sigurtilfinningu þegar vel hefur gengið,“ sagði rektor.

Að vanda voru verðlaun veitt fyrir framúrskarandi námsárangur. Hvatningarverðlaun hlutu Árdís Árnadóttir, Karen Jacobsen, Klara Ósk Elíasdóttir og Katrín Ýr Árnadóttir.

Útskriftarverðlaun fyrir Háskólagátt fengu Hrafnhildur Tinna Ólafsdóttir og Kristrós Erla Baldursdóttir. Útskriftarverðlaun fyrir grunnnám fengu Svava Rós Guðmundsdóttir og Jenný Rebekka Jónsdóttir. Útskriftarverðlaun fyrir meistaranám fékk Gylfi Gestsson.

Nöfn þeirra hafa þar með bæst við Bifrastarlista háskólans.

Í ræðu sinni fjallaði rektor um stöðu háskóla og vísinda sem samfélagseign. „Vísindi verða að þjóna samfélaginu. Þau eiga að stuðla að hagsæld, framþróun og velferð. Og það er einmitt í þessu jafnvægi, milli frelsis og ábyrgðar, sem styrkur akademíunnar felst.“ Ólína benti á að aðgengi að menntun er lykilstoð góðra samfélaga. „Þegar við ræðum gildi menntunar erum við í raun að ræða grundvöll samfélagsins. Menntun gerir okkur kleift að meta upplýsingar, greina rangfærslur og taka upplýstar ákvarðanir. Hún er óumdeilanleg forsenda efnahagslegrar þróunar og nýsköpunar. En menntun er einnig réttlætismál. Aðgengi að henni ákvarðar að miklu leyti hvaða tækifæri fólk hefur í lífinu. Ef aðgengi er skert eða ójafnt, eykst ójöfnuður. Þess vegna skiptir höfuðmáli að við horfum ekki aðeins á menntun sem tæki til hagvaxtar, heldur sem samfélagslegt verkefni.“

Tónlistarfólkið Jón Þór Sigmundsson, Edda María Jónsdóttir og Isobel Líf Díaz, sem öll koma frá Borgarbyggð og Borgarnesi, fluttu valin sönglög í upphafi dagskrár og milli atriða.

Brautskráningin fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi þann 13. júní 2026 og var streymt beint frá viðburðinum á vef háskólans. Einnig má nálgast upptöku af útskriftarhátíðinni á Youtube.

IMG_2158
Mynd: Klara í Nylon með samnemendum
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Farþegar teknir úr flugvél eftir sprengjuhótun á Kanarí
Heimur

Farþegar teknir úr flugvél eftir sprengjuhótun á Kanarí

Eftir lendingu var vélinni beint á afskekkt svæði flugvallarins
Lögreglan dulbjó sig sem risastóra umferðarkeilu
Heimur

Lögreglan dulbjó sig sem risastóra umferðarkeilu

Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída
Heimur

Dularfullur sívalningur rak á land í Flórída

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote
Heimur

Bresk kona lést eftir að hafa hnigið niður á Lanzarote

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi
Innlent

Smyglaði sér inn um þakglugga og stal síðan fjalli af áfengi

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael
Heimur

Báðir helstu frambjóðendurnir vilja Stór-Ísrael

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons
Myndband
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Að minnsta kosti 39 látnir í árekstri tveggja háhraðalesta á Spáni
Heimur

Að minnsta kosti 39 látnir í árekstri tveggja háhraðalesta á Spáni

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu
Myndband
Menning

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu

Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

JYSK svarar ummælum Mörtu Maríu um Jysk-hyllur
Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur
Myndir
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons
Myndband
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík
Fólk

Flutti 21 árs til Íslands og fann sitt fólk í Reykjavík

Selja eitt fallegasta parhús landsins
Myndir
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Loka auglýsingu