Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans

Lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meist­ari með lið­inu tvö ár í röð

Lamar Odom
Lamar Odom Mynd: Bridget Samuels/Wikipedia

Lamar Odom, fyrr­ver­andi NBA leik­maður og goð­sögn úr liði Los Angeles Lakers, hefur ákveðið að feta nýjar slóðir og ganga til liðs við OnlyFans.

Banda­ríski mið­ill­inn TMZ greinir frá þessu og segir Odom vera fyrstu NBA stjörn­una til að ganga form­lega til liðs við efn­isveit­una. Odom segir sjálfur að fólk eigi þó ekki að gefa sér fyrir fram hvers konar efni hann muni birta þar.

„Fólk heyrir OnlyFans og hugsar sjálf­krafa um eitt ákveðið, en ég ætla ekki að segja ykkur hvað þið munið eða munið ekki sjá,“ segir Odom í sam­tali við TMZ.

Odom, sem er 46 ára, á að baki lit­ríkan feril bæði innan og utan körfu­bolta­vall­ar­ins. Hann lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meist­ari með lið­inu tvö ár í röð, 2009 og 2010. Hann var lyk­il­maður í sterku Lakers liði þess tíma og lék meðal ann­ars við hlið Kobe Bryant og Pau Gasol.

Árið 2011 var Odom jafn­framt val­inn besti sjötti maður NBA deild­ar­innar.

Segir fleiri óvæntar uppákomur eftir

Odom gefur í skyn að fylgj­endur hans á OnlyFans geti fengið að sjá hliðar á honum sem almenn­ingur hefur ekki áður kynnst.

„Ég hef lifað ansi villtu lífi og trúið mér, það eru enn nokkrar óvæntar upp­á­komur eftir. Ég hef alltaf verið eins og opin bók, en það eru nokkrir kaflar sem fólk hefur ekki séð enn,“ segir Odom.

Kærasta hans, Rachel Bradley, hefur einnig stofnað sína eigin síðu á OnlyFans. Samkvæmt heim­ildum TMZ er mögu­legt að parið muni síðar fram­leiða efni saman fyrir veit­una.

Odom hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu frá því að NBA ferli hans lauk, meðal ann­ars vegna einka­lífs síns. Hann var áður kvæntur raun­veru­leika­stjörn­unni Khloé Kar­dashian og sam­band þeirra var um ára­bil áber­andi í banda­rískum fjöl­miðlum.

Nú virð­ist Lakers goð­sögnin hins vegar ætla að opna nýjan kafla á ferl­inum og færa sig yfir í heim áskrift­ar­efnis á net­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Sport

Átján ára knatt­spyrnu­maður lést eftir höf­uð­högg í miðjum leik

Læknar greindu höfuðkúpubrot og innvortis blæðingar hjá Abel Núñez eftir atvik í leik FC Ezeiza og Deportivo Muniz.

Fram­herji CD Tenerife lést eftir árekstur við mark­mann

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Helga Margrét vill breyta heim­inum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Mark­vörð­ur­inn í áfalli eftir dauðs­fallið

Kristian Nökkvi kemur inn í lands­liðs­hóp­inn