
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Ásgerður Ragnarsdóttir verði skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september 2026 ne þetta kemur fram í tilkynningu stjórnvalda.
Ásgerður Ragnarsdóttir lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 2004 og viðbótarmeistaragráðu (LL.M.) frá Cambridge-háskóla árið 2008. Hún öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2005 og fyrir Hæstarétti árið 2016. Að loknu laganámi starfaði hún í dómsmálaráðuneytinu sem lögfræðingur frá júní 2004 til desember 2005, er hún hóf störf sem aðstoðarmaður dómara í Hæstarétti og sinnti hún því starfi til í september 2008.
Frá september 2008 til byrjun árs 2018 starfaði hún sem lögmaður á lögmannsstofu, þar af sem meðeigandi frá árinu 2012. Í upphafi árs 2018 var hún skipuð dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og sinnti því starfi þar til hún hóf störf sem landsréttardómari í maí 2023.
Hún hefur verið forseti Félagsdóms frá september 2021 og er varadómari við EFTA-dómstólinn. Hún sat í kærunefnd útboðsmála árin 2013 – 2021, meðal annars sem formaður nefndarinnar frá apríl 2019, var varamaður í óbyggðanefnd í rúmlega tvö ár og varamaður í úrskurðarnefnd velferðarmála í fjögur ár.
Þá sat hún í stjórn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands á árunum 2009 – 2017 og siðareglunefnd Lögmannafélags Íslands á árunum 2016 - 2018. Ásgerður hefur verið aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands frá 2017 og sinnti áður stundakennslu við skólann eða frá árinu 2009.
Hún hefur skrifað ritrýnda fræðibók ásamt öðrum, tvo ritrýnda bókarkafla og fimm ritrýndar fræðigreinar með öðrum, ásamt því að sitja í ýmsum ritnefndum. Þá hefur hún komið að gerð lagafrumvarpa.
