1
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

2
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

3
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

4
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

5
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

6
Fólk

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

7
Innlent

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

8
Fólk

Benedikt dvaldi fjóra daga á sjúkrahúsi eftir óvenjulegt slys

9
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

10
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Til baka

Lífvörður Díönu og Hollywood-stjarna látinn 63 ára

Prinsessan kallaði hann „Rambo“.

lee_sansum
Lee Sansum.Díana prinsessa var afar þakklát Lee fyrir störf hans.

Lee Sansum, fyrrverandi lífvörður Díönu prinsessu, sem einnig hafði gætt öryggis prinsanna Vilhjálms og Harrýs, er látinn, 63 ára að aldri.

Sansum, sem var fyrrum yfirmaður í konunglegu herlögreglunni, lést af völdum hjartaáfalls að heimili sínu að morgni laugardags. Dánartilkynningin var gefin út af eiginkonu hans, Kate Sansum, sem er heilsuþjálfi og bardagalistakennari.

Í færslu á samfélagsmiðlum skrifaði hún:

„Síðan við kynntumst árið 1998 hefur Lee Sansum verið sálufélagi minn, hetja og dásamlegasti maðurinn í mínu lífi. Ég er gjörsamlega niðurbrotin yfir að hann sé ekki lengur með okkur. Hann lést úr hjartaáfalli á heimili okkar á laugardagsmorgun.

Hans miklu nærveru verður saknað um allan heim, rétt eins og á okkar heimili, þó að sú ást og lífsleikni sem hann skildi eftir sig verði alltaf hluti af okkur. Ég elska þig meira en nokkru sinni, MyLovely Lee.“

Sansum, sem var faðir sex barna, var með svarta beltið í karate, júdó og kickboxi og starfaði einnig sem lífvörður fyrir fræga einstaklinga á borð við Sylvester Stallone og Tom Cruise.

Hann var meðal annars lífvörður Dodi Al-Fayed og Díönu prinsessu í júlí 1997 þegar þau dvöldu í fríi um borð í snekkju Mohamed Al-Fayed við St. Tropez, mánuði fyrir dauða hennar. Hann lýsti Díönu sem „ótrúlegri konu“ sem sýndi mikla samkennd og aldrei talaði illa um aðra. Hann rifjaði einnig upp að hún hefði grátið á öxl hans eftir morðið á tískuhönnuðinum Gianni Versace.

Hann varð einnig náinn prinsunum, sér í lagi Harrý sem hann kenndi að keyra sæþotu nálægt ljósmyndurum svo þeir yrðu gegnblautir, sér til skemmtunar. Díana þakkaði honum sérstaklega fyrir þjónustu sína með bréfi þar sem hún nefndi að „töfrandi tíu dagar“ í fríinu hefðu ekki verið mögulegir án hans.

Díana kallaði hann „Rambo“ og Sansum hélt því síðar fram að hún væri enn á lífi ef hann hefði verið á vaktina kvöldið sem hún lést í bílslysi í París í ágúst 1997.

Sansum hafði einnig starfað sem herlögreglumaður á Norður-Írlandi á tímum átaka þar og sagðist hafa lært þar sitt „fag“ í vitnaverndinni.

Eftir herþjónustuna hóf hann störf sem lífvörður og komst í tengsl við auðkýfinginn Mohamed Al-Fayed sem hreifst svo af hæfileikum hans að Sansum sagðist hafa orðið nánast hluti af fjölskyldunni.

Árið 2018 opinberaði hann að hann hefði þjáðst af áfallastreituröskun (PTSD), jafnvel meðan hann verndaði konunglega fjölskyldumeðlimi. Hann sagðist hafa viljað sameinast Harrý síðar í lífinu svo þeir gætu vakið athygli á geðheilbrigðisvanda meðal fyrrum hermanna:

„Enginn vissi það, en ég var með PTSD þegar ég sinnti verndun prinsessunnar og sona hennar. Það var engin aðstoð í boði fyrir fólk með geðræna erfiðleika þegar ég yfirgaf herinn. Ég sagði litla Harrý sögur úr hernum og hvað ég hefði gert þar og hann var heillaður.“

Sansum starfaði einnig sem lífvörður Alex Salmond, fyrrverandi forsætisráðherra Skotlands, á síðustu dögum harðrar kosningabaráttu fyrir sjálfstæði Skotlands árið 2014. Hann hafði þá nýverið snúið aftur frá Líbíu þar sem hann hafði aðstoðað við brottflutning friðargæsluliða fyrir hönd ESB.

„Við vorum í hættu allan sólarhringinn í Líbíu,“ sagði hann síðar. „En miðað við að hafa staðið frammi fyrir byssum og sprengjum, þá er ég miklu frekar til í að forðast eggjakast í Skotlandi.“

Mirror fjallaði um andlátið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“
Innlent

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Járnþrúður skipuð formaður
Innlent

Járnþrúður skipuð formaður

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur
Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrot
Innlent

Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrot

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu
Heimur

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínar
Innlent

Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínar

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu
Heimur

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar
Heimur

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur
Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur

„Hann virtist vera í leiðslu“
Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu
Heimur

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu
Heimur

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar
Heimur

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar

Loka auglýsingu