
Austurbæjarskóli
Mynd: TommyBee/Wikipedia
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með talsverðan viðbúnað við Austurbæjarskóla á öðrum tímanum í dag vegna andláts en RÚV greinir frá málinu.
Að sögn Unnars Más Ástþórssonar aðalvarðstjóra bendir ekkert til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Ekki liggur fyrir að nokkur hafi orðið vitni að því þegar viðkomandi lést.
Lögregla vinnur nú að því að bera kennsl á hinn látna og hafa samband við aðstandendur. Í kjölfarið tekur við rannsókn á tildrögum andlátsins. Aðstoð stendur jafnframt þeim til boða sem komu að vettvangi.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
