1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

5
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

6
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

7
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

8
Innlent

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“

9
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

10
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Til baka

„Líklega hefur aldrei farið í gang stærri áróðursherferð á Íslandi“

Sakar Áfram Ísland um rangfærslur

Egill Helgason
Egill Helgasonsparar ekki stóru orðin: „Bókstaflega verið að drekkja þjóðinni“

Sjónvarpsmaðurinn og samfélagsrýnirinn Egill Helgason segir umfang auglýsingaherferðar samtakanna Áfram Ísland vera án fordæma hér á landi. Hann kallar eftir gagnsæi um fjármögnun herferðarinnar og segir þjóðinni bókstaflega drekkt í auglýsingum rétt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Miklar umræður standa nú yfir um umfang og fjármögnun þeirra auglýsingaherferða sem hafa verið undanfarnar vikur vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Egill Helgason, fjölmiðlamaður, tjáði sig um málið á Facebook-síðu sinni og sparar þar ekki stóru orðin um starfsemi samtakanna Áfram Ísland, sem berjast fyrir því að viðræðum verði hætt.

„Líklega hefur aldrei farið í gang stærri áróðursherferð á Íslandi en sú sem Áfram Ísland svokallað rekur nú,“ skrifar Egill. Hann bendir á að herferðin nái til nánast allra miðla og sjáist hvarvetna í samfélaginu: „Maður hlýtur að spyrja út í kostnaðinn og hverjir reiða fram allt þetta fé – það er bókstaflega verið að drekkja þjóðinni í auglýsingum á netinu, í sjónvarpi og á skiltum.“

Gagnrýnir rangfærslur en hrósar fagmennskunni

Egill gerir sömuleiðis alvarlegar athugasemdir við innihald auglýsinganna frá Áfram Ísland og segir gæði upplýsinganna ábótavant. „Alls kyns ónákvæmni í auglýsingunum og beinar rangfærslur vekja líka athygli – til dæmis hvernig hæpnum fullyrðingum er slengt fram í formi spurninga.“

Hins vegar segir hann ljóst að herferðin sé keyrð áfram af miklu afli og sérfræðiþekkingu, enda standi ein stærsta auglýsingastofa landsins að baki henni. „En vissulega er mjög fagmannlega að verki staðið,“ bætir hann við.

Herferð já-sinna sögð máttlítil

Að mati Egils er mikill munur á baráttu þeirra sem vilja áframhaldandi viðræður og þeirra sem vilja stöðva þær. Hann segir herferð þeirra sem hvetja fólk til að kjósa „já“ vera mjög slaka í samanburði. „Herferð já-sinna er mjög máttlítil miðað þennan flaum – og ekki nálægt því eins úrhugsuð.“

Egill lýsir jafnframt ákveðnum hliðum herferðarinnar sem „pínu hjákátlegum“ og nefnir sem dæmi boðaðan útifund þar sem fyrrverandi forsætisráðherra ætlar að skýra frá afstöðu sinni. „Nú er það kannski ekki ýkja spennandi – en þetta er augljóslega hannað af almannatenglum til að fá feita umfjöllun í fréttatímum rétt fyrir kosningarnar.“

Hann dregur þá ályktun að öll þessi atburðarás verði áhugaverð rannsókn í framtíðinni, „líka hvað varðar gildi þjóðaratkvæðagreiðsla,“ eins og hann orðar það að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Japanir kepptu í svefni
Heimur

Japanir kepptu í svefni

„Þetta var skemmtileg keppni“
Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu
Heimur

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

Salmonella greindist í innfluttu kryddi
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Pólitík

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar
Pólitík

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang
Innlent

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

„Frakkar þurfa ekki innflytjendur til að verða róttækir“
Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti
Innlent

Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti

Salmonella greindist í innfluttu kryddi
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang
Innlent

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla
Innlent

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla

„Kúga börn til að senda nektarmyndir“
Innlent

„Kúga börn til að senda nektarmyndir“

Loka auglýsingu