Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Lögfræðingur vistaður á brókinni í fjórar klukkustundir

„Varð hreinlega hræddur“

Árni Stefán handtekinn í tengslum við rannsókn á innbrotum í dýrabú
Árni Stefán hand­tek­inn í tengslum við rann­sókn á inn­brotum í dýrabú Mynd: Aðsend

Lögfræðingurinn Árni Stefán Árnason var hand­tekinn í síðustu viku í tengslum við umfangs­mikla rannsókn lögreglu á röð innbrota í eldisbú á höfuð­borgar­svæðinu og nágrenni. Innbrotin, sem hófust í maí síðastliðnum, áttu sér stað í Stjörnu­grís á Kjalarnesi, Reykja­búinu í Mosfellsbæ og Dalsbúi í Mosfellsdal. Frá þessu er greint á frétta­vefnum Nútímanum.

Í aðgerðum lögreglu voru sími og fartölva Árna haldlögð og bifreið hans rannsökuð. Árni lýsir sjálfur harkalegri upplifun í samtali við Nútímann, en hann var fluttur í fanga­klefa klæddur undir­fötunum einum saman þar sem hann var vistaður í fjórar klukku­stundir fyrir yfirheyrslu.

„Mér var komið fyrir í fanga­klefa, klæddum undir­fötunum einum. Ég fór mjög fljótt í gríðar­lega geðs­hræringu og varð hreinlega hræddur,“ segir Árni og bætir við að það hafi verið svakalega óþægilegt að sitja í klefanum vegna saka sem hann tengist á engan hátt. Vegna ástandsins var kallað eftir aðstoð sjúkra­flutninga­manna sem mældu Árna með hættulega háan blóð­þrýsting.

Hafnar sök og dregur lögmæti í efa


Árni hafnar alfarið aðild að innbrotunum og segir að lögreglan hafi aldrei spurt hann beint út í framkvæmd þeirra í yfirheyrslum, heldur aðeins um almennt viðhorf hans til málsins. Hann telur að handtakan og húsleitin tengist fremur eigin dýrahaldi og lang­varandi deilum hans við Matvæla­stofnun (MAST) fremur en innbrotunum sjálfum.

Árni hyggst leita réttar síns vegna málsins. Hann telur að lögreglan hafi brotið gegn friðhelgi heimilis síns og að aðgerðirnar hafi farið langt út fyrir öll meðalhófs­próf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning