Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu

„Þetta var bæði erf­ið­asta tón­list­ar­mynd­band sem ég hef gert og það skemmti­leg­asta“

Auðunn Luthersson
Auðunn Luthers­son Luthers­son er stoltur af nýjasta mynd­bandi sínu Mynd: Aðsend

Auðunn Lúth­ers­son, betur þekktur sem Auður, kemur nú fram undir lista­manns­nafn­inu Luthers­son. Hann frum­sýndi tón­list­ar­mynd­band við lagið Open The Gates á YouTube 23. októ­ber. Mynd­bandið sækir inn­blástur í kvik­myndir Quentin Tar­antino og spa­get­tí­vestra.

Sama kvöld hélt hann frum­sýn­ing­arpartý í Los Angeles, þar sem hann hefur búið síð­ustu þrjú ár.

Mynd­bandið er bæði tón­list­ar­mynd­band og stutt­mynd þar sem tvær útgáfur af Luthers­son berj­ast um hylli sömu kon­unnar í mis­kunn­ar­lausri eyði­mörk. Sagan sækir inn­blástur í kvik­myndir Quentin Tar­antino og svo­kall­aða spa­get­tí­vestra.

Mynd­bandið var tekið upp á einni helgi í Pear­blossom í Kali­forníu. David Telles, sem er af Yoeme- og Ajachemen-frum­byggja­þjóð­unum, leik­stýrði því og Interlude Studios sá um fram­leiðslu. Ryan Sadler ann­að­ist kvik­mynda­tök­una. Með Luthers­son í helstu hlut­verkum eru Gabrielle Luterman, Theo Rodrigues og Tokie Wang.

„Ofbeldisfull ástarsaga vafin súrrealisma“

David Telles leik­stjóri segir mynd­bandið vera óvenju­lega blöndu af stutt­mynd og tón­list­ar­mynd­bandi.

„Þetta mynd­band er stutt­mynd í dul­ar­gervi, ofbeld­is­full ást­ar­saga vafin súr­r­eal­isma. Per­són­urnar eru óreiðu­kenndar, gall­aðar og í stríði við sjálfar sig. Eyði­mörkin er sviðið okkar,“ segir Telles.

Auðunn segir tök­urnar hafa verið krefj­andi en jafn­framt skemmti­legar og að hann sé stoltur af útkom­unni.

„Þetta var bæði erf­ið­asta tón­list­ar­mynd­band sem ég hef gert og það skemmti­leg­asta. Við vorum með slags­mála­at­riði, bíla­senur, áhættu­at­riði og drama­tík í steikj­andi hita í eyði­mörk­inni. Ég er ótrú­lega stoltur af þessu,“ segir hann.

Hann segir einnig frá sam­starf­inu við leik­stjór­ann David Telles, sem hann kynnt­ist við tökur á stutt­mynd­inni Freyr, sem nú er aðgengi­leg á streym­isveit­unni Hulu.

Kærasta hans, Tokie Wang, fer með stórt hlut­verk í mynd­band­inu og starf­aði jafn­framt sem stílisti við verk­efnið.

„Ég kynnt­ist David við tökur á stutt­mynd­inni Freyr sem er núna aðgengi­leg á Hulu. Kærastan mín Tokie fer með stórt hlut­verk í þessu ásamt því að vera stílisti. Ég er með frá­bært fólk í kringum mig og spenntur fyrir fram­hald­inu,“ segir Luthers­son.

Með Open The Gates stígur Luthers­son inn í nýjan kafla á tón­list­ar­ferli sínum og blandar saman tón­list, kvik­mynda­gerð og áhrifum úr vestrum og súr­r­eal­ískum kvik­myndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027