
Mynd: Shutterstock
Erlendur ferðamaður á fertugsaldri fannst látinn í Jöklu við Stuðlagil á tíunda tímanum í gærkvöldi. Maðurinn hafði fallið í ána fyrr um daginn og hófst þá umfangsmikil björgunaraðgerð.
Tilkynning um slysið barst rúmlega eitt og komu um hundrað viðbragðsaðilar að leitinni, meðal annars lögregla, björgunarsveitir, sérsveit ríkislögreglustjóra, Rauði krossinn, sjúkralið og slökkvilið.
Aðstandendur mannsins hafa verið upplýstir. Lögregla veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
