1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

5
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

6
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

7
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

8
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

9
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

10
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Til baka

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi

Umferðarhegðun á Langholtsvegi hefur áður vakið athygli

Langholtsvegur Laugardalur
Skilti við Langholtsveg
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Móðir í Langholtshverfi kallar eftir aðgerðum Reykjavíkurborgar til að draga úr umferðarhraða á Langholtsvegi eftir að litlu munaði að ekið væri á hana og dóttur hennar við gangbraut í morgun.

Sigríður Erla Sturludóttir greinir frá atvikinu í Langholtshverfishópnum á Facebook. Segir hún ökumann hafa ekið augljóslega of hratt þegar mæðgurnar voru við gangbrautina hjá Langholtsvegi 112.

„Í morgun var næstum keyrt á okkur mæðgur við gangbrautina hjá Langholtsvegi 112 þar sem viðkomandi keyrði augljóslega alltof hratt,“ skrifar Sigríður.

Í kjölfarið tóku mæðgurnar sig til og útbjuggu skilti til að minna ökumenn á að hámarkshraði á götunni er 30 kílómetrar á klukkustund. Sigríður segir brýnt að borgaryfirvöld grípi til aðgerða, til dæmis með uppsetningu hraðahindrana, áður en alvarlegt slys verður.

Áhyggjur af umferðaröryggi á Langholtsvegi eru ekki úr lausu lofti gripnar. Karlmaður var sýknaður seint í fyrra í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna alvarlegs umferðarslyss á Langholtsvegi 26. nóvember 2024.

Maðurinn ók þá bifreið á gangandi vegfaranda og hund hans. Vegfarandinn slasaðist mjög alvarlega og hlaut meðal annars heilablæðingu, dreifðan heilaáverka, brot í hálshrygg og rifi, lungnamar og beinbrot í vinstri fótlegg. Ökumaðurinn var hins vegar sýknaður af ákærunni.

Umferðarhegðun í nágrenni Langholtsvegar hefur áður vakið athygli. Þegar malbiksframkvæmdir fóru fram í Skeiðarvogi árið 2019 og götunni var lokað milli Sæbrautar og Langholtsvegar brugðu nokkrir ökumenn á það ráð að aka upp á gangstéttir til að komast fram hjá lokuninni og fjallaði Mannlíf um málið á sínum tíma

Myndband af akstrinum vakti töluverða athygli á samfélagsmiðlum. Sá sem birti myndbandið sagði að litlu hefði munað að slys yrði skömmu áður en upptakan hófst. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást þá við myndbandinu og sagði: „Þetta er ótrúlegt að sjá.“

Sigríður hvetur ökumenn nú til að virða hámarkshraðann á Langholtsvegi á meðan beðið er eftir mögulegum aðgerðum borgarinnar.

„Munum þá eftir að hægja á okkur og keyra ekki hraðar en á 30 km hraða,“ skrifar hún.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Tjónið er talið nema meira en 2.000 Bandaríkjadölum
Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote
Heimur

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Innlent

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð
Heimur

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara
Peningar

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu
Myndir
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

„Slíkar skemmtanir þóttu hins vegar ófínar og lágkúrulegar og voru meira og minna skrifaðar út úr sögunni.“
Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Innlent

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Loka auglýsingu