1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

4
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

5
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

8
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

9
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

10
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Til baka

Margrét segist hafa haldið að pabbi hennar hefði dottið

Sögð hafa beitt foreldra sína ofbeldi svo árum skiptir

Súlunes 13
Margrét LöfMagrét kveðst alsaklaus í málinu
Mynd: Víkingur

Margrét Halla Hansdóttir Löf, sem ákærð er fyrir að hafa banað föður sínum og gert tilraun til að bana móður sinni á heimili fjölskyldunnar í Súlunesi í Garðabæ, neitar sök. Í skýrslutökum hjá lögreglu sagðist hún hafa verið í svefnherbergi sínu þegar hún heyrði dynk. Þegar hún kom fram sá hún föður sinn liggja á gólfinu og taldi hann hafa dottið. Hún kvaðst ekki vita hvernig móðir hennar hefði fengið áverka, en giskaði á að þau gætu stafað af fyrri föllum eða slysum. Mbl.is segir frá málinu.

Samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjaness, þar sem lögregla fór fram á áframhaldandi gæsluvarðhald, barst tilkynning um meðvitundarlausan mann á heimilinu. Þegar lögregla kom á vettvang lá maðurinn í anddyri hússins, meðvitundarlaus, á meðan eiginkona hans reyndi að aðstoða hann. Margrét stóð skammt frá. Reynt var endurlífgun, en maðurinn lést síðar sama dag. Bæði hjónin voru með mikla áverka og blóðslettur fundust víða um húsið, sem benti til átaka.

Lögregla telur að áverkarnir á manninum hafi að mestu verið af völdum annars einstaklings og að þeir hafi orðið til á mismunandi tímum og undir ólíkum kringumstæðum, meðal annars eftir högg, spark eða árekstra við harða fleti. Dánarorsök er ekki fullkomlega ljós, en ekkert bendir til þess að bráð veikindi hafi legið að baki.

Löng saga ofbeldis

Vitni hafa lýst því að Margrét hafi um langt skeið sýnt foreldrum sínum ofbeldishegðun, og gögn málsins sýna að þau hafi leitað læknisaðstoðar vegna heimilisofbeldis. Margrét sjálf kvaðst í yfirheyrslu hafa alist upp við ofbeldisástand á heimilinu.

Lögregla telur að móðir Margrétar, sem er lykilvitni í málinu, hafi búið við langvarandi ógnarástand og að Margrét hafi haft mikil áhrif á líf hennar. Því sé hætta á að hún reyni að hafa áhrif á vitni og rannsókn málsins ef hún fengi frelsi.

Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði Margréti áfram í gæsluvarðhald og Landsréttur staðfesti það. Hún hefur setið í haldi frá 13. apríl og gæsluvarðhaldið var síðast framlengt í lok júlí. Málið verður tekið fyrir í héraðsdómi í haust. Sonur hins látna, hálfbróðir Margrétar, krefst sex milljóna króna í miskabætur og að hún verði gerð arflaus. Móðirin krefst ekki bóta.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Heimur

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney
Innlent

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

Loka auglýsingu