
MAST Í Reykjavík
Mynd: Brynhildur Jensdóttir
Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu af Trevissan chia fræjum sem Costco flytur inn og selur í sinni verslun vegna skordýra sem fanns i einni krukku. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, (HEF) innkallað vöruna.
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna geta skila henni gegn endurgreiðslu í verslun Costco í Kauptúni 3, Garðabæ.
Mynd: MAST
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:
- Vörumerki: Trevissan
- Vöruheiti: Chia Seeds
- Framleiðandi: Sænskt fyrirtæki
- Uppruni: Paraguay, Argentina or Brazil.
- Lotunúmer: CH268X
- Nettóþyngd: 1,400 g
- Geymsluþol: 19.03.2027
- Strikamerki: 8410770912342
- Dreifing: Costco heildsala á Íslandi
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
