
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Irmantas Bartosevicius í 15 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti sem voru liður í umfangsmikilli og skipulagðri brotastarfsemi. Dómurinn var kveðinn upp 15. september.
Samkvæmt ákæru héraðssaksóknara voru brotin framin á árunum 2024 til 2026. Bartosevicius var meðal annars gefið að sök að hafa tekið ítrekað við og geymt fjármuni sem taldir voru afrakstur af sölu og dreifingu fíkniefna eða annarri refsiverðri háttsemi.
Fjármunirnir voru ýmist í reiðufé eða lagðir inn á bankareikning hans og síðan komið áfram til samverkamanna. Tilgangurinn var samkvæmt ákæru að umbreyta fjármununum og leyna upplýsingum um uppruna þeirra og eðli.
Meðal þess sem kom fram í ákærunni var að Bartosevicius hefði í tíu millifærslum sent samtals 2,4 milljónir króna á bankareikning annars einstaklings. Þá afhenti hann einum samverkamanni 13.900 evrur í reiðufé í mars 2025. Peningarnir voru síðar afhentir konu sem hugðist fljúga með þá til Mílanó en var stöðvuð af tollvörðum.
Nokkrum dögum síðar afhenti hann sama samverkamanni 9.600 evrur sem fóru til manns sem hugðist fljúga til Frankfurt. Sá var einnig stöðvaður af tollvörðum.
Í ákærunni kom jafnframt fram að Bartosevicius hefði í eitt skipti afhent öðrum einstaklingi 5,9 milljónir króna sem skipt var í evrur og komið áfram. Þá var honum gefið að sök að hafa komið að innflutningi fíkniefna með miðlun upplýsinga og haft fíkniefni í vörslum sínum.
Bartosevicius játaði brotin skýlaust fyrir dómi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hann hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, játaði og var samvinnuþýður við rannsókn málsins. Á móti vó að brotin voru hluti af umfangsmikilli og skipulagðri brotastarfsemi fleiri aðila.