1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

9
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

10
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Til baka

Móðir yfirgaf syni sína erlendis

Drengirnir eru 4 ára og 5 ára

Comporta_Beach
Comporta-ströndinMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Herdade da Comporta/Wikipedia

Lögregla í Portúgal handtók á fimmtudag 41 árs gamla franska konu, móður tveggja ungra drengja sem fundust yfirgefnir við þjóðveg nærri ferðamannabænum Comporta í suðurhluta landsins fyrr í vikunni. Drengirnir, fjögurra og fimm ára gamlir, fundust einir og grátandi við vegkant á þriðjudag eftir að vegfarandi kom auga á þá.

Samkvæmt portúgölskum fjölmiðlum voru drengirnir með bakpoka sem innihéldu mat og vatn, en engin skilríki fundust á þeim. Í kjölfarið hófst umfangsmikil leit að móður þeirra sem lauk þegar hún var handtekin í bænum Fatima í miðhluta Portúgals ásamt 55 ára gömlum manni. Þau eru grunuð um vanrækslu, að hafa stofnað börnunum í hættu og yfirgefið þau.

Faðir drengjanna, sem er búsettur í Colmar í austurhluta Frakklands og er skilinn við móður þeirra, hafði tilkynnt þá týnda fyrir um tíu dögum.

Vegfarandinn sem fann drengina, Alexandre Quintas, sagði í samtali við portúgalska miðla að hann hefði farið með þá í bakarí sem fjölskylda hans rekur áður en hann hafði samband við yfirvöld. Þar fengu þeir mat, ís og leikföng á meðan beðið var eftir lögreglu.

Móðir Alexandre, Eugenia Quintas, sagði að frönskumælandi læknir hefði rætt við drengina. Samkvæmt frásögn eldri drengsins höfðu þeir verið með bundið fyrir augun og fengið fyrirmæli um að leita að földu leikfangi. Þegar þeir tóku bindið af sér voru móðir þeirra og bifreið hennar horfin.

Yfirvöld í Frakklandi og Portúgal rannsaka nú málið sameiginlega. Drengirnir eru undir eftirliti á sjúkrahúsi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Klippa þurfti bílstjórann út úr vagninum.
Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar
Innlent

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum
Innlent

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Klippa þurfti bílstjórann út úr vagninum.
Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Loka auglýsingu