
Níu karlmenn hafa verið ákærðir í Straumsvíkurmálinu svokallaða, sex erlendir ríkisborgarar og þrír Íslendingar. Málið snýst um innflutning á 106,2 kílóum af kókaíni sem falin voru í sjókistu flutningaskipsins Koznitza en um er að ræða stærsta kókaínsmygl í sögu Íslands.
RÚV greindi frá.
Vasile Costache, Arthur De Araujo Faria, Corneliu Radulescu, Eziquiel De Lima Pereira og Wagner Alexandre De Silva eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot. Samkvæmt ákæru voru efnin ætluð til söludreifingar hér á landi en lögregla fjarlægði þau úr skipinu og kom gerviefnum fyrir í staðinn.
Mennirnir eru sagðir hafa notað köfunarbúnað til að sækja gerviefnin úr skipinu í Straumsvík aðfaranótt 24. júní. Hluti þeirra var síðar fluttur til Kópavogs.
Íslendingarnir Lúther Ólason og Lárus Freyr Einarsson eru ákærðir fyrir að hafa tekið við um 30 kílóum af gerviefnunum. Atli Freyr Fjölnisson er sakaður um að hafa gefið þeim fyrirmæli um móttökuna í gegnum samskiptaforritið Signal.
Sjötti erlendi maðurinn er einnig ákærður fyrir hlutdeild í brotinu með því að hafa flutt köfunarbúning frá Ítalíu.
Ákæruvaldið krefst jafnframt upptöku fíkniefna, skotvopns, skotfæra, farsíma, bifreiðar og köfunarbúnaðar. Farið hefur verið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum.
