
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars var tilkynnt um hnífaógn, þjófnaði, umferðaróhöpp og nokkra ökumenn sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Lögreglu barst tilkynning um mann með hníf og var hann handtekinn á vettvangi. Við nánari athugun kom í ljós að um erlendan ferðamann var að ræða sem hafði verið að tína blóm og notað hnífinn við það. Maðurinn var látinn laus að lokinni skýrslutöku.
Í öðru tilviki tilkynnti einstaklingur að sér hefði verið ógnað með hníf við strætóskýli. Honum tókst að hlaupa á brott en þegar lögregla kom á vettvang var meintur gerandi farinn. Talið var líklegt að hann hefði farið með strætisvagni og fannst hann ekki.
Þá var óskað eftir aðstoð vegna umferðaróhapps þar sem rafhlaupahjóli hafði verið ekið á tvær bifreiðar. Ökumaður hjólsins reyndist undir áhrifum áfengis og var handtekinn. Hann var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Nokkrir ökumenn voru jafnframt handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einn þeirra hafði verið sviptur ökuréttindum og annar ók án ökuréttinda. Einnig var tilkynnt um ölvaðan ökumann en lögreglu tókst ekki að hafa uppi á bifreiðinni.
Lögregla sinnti auk þess nokkrum tilkynningum um þjófnaði úr verslunum. Í einu tilviki hljóp meintur gerandi af vettvangi og fannst ekki.
Þá var maður handtekinn eftir að hafa ítrekað neitað að hlýða fyrirmælum lögreglu um að yfirgefa port lögreglustöðvar. Hann var vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Loks sinnti lögregla tilkynningum um ungmenni sem voru sögð ónáða íbúa í stigagangi og tónlistarhávaða í heimahúsi. Í síðarnefnda tilvikinu var húsráðandi beðinn um að lækka tónlistina.
