1
Innlent

Íslenski barinn Nostalgía tilkynnir stórtíðindi

2
Heimur

Áhrifavaldurinn Einar Méndez fallinn frá

3
Heimur

Kona fær nálgunarbann samþykkt eftir ofbeldi sem sást á eftirlitsmyndavél

4
Innlent

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco

5
Innlent

Hjónin hvergi sjáanleg en skuldin stendur eftir

6
Fólk

Opnuðu sig um heilaæxli Unu

7
Innlent

Milljónafarangurinn komst ekki lengra en Leifsstöð

8
Fólk

Ein dýrasta gata landsins heldur áfram að standa undir nafni

9
Fólk

Sjaldséð risastór eign í Þingholtunum komin í sölu

10
Menning

Ónæði á Akranesi

Til baka

Nýr vegur gjörbreytir samgöngum á Íslandi

Framkvæmdin er ein sú stærsta á svæðinu í áraraðir

Opnun nýs hringvegar
Mynd: Klippt á borð á nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót/Stjórnarráðið.

Nýr vegarkafli um Hornafjörð og fjórar nýjar tvíbreiðar brýr voru formlega teknar í notkun í dag. Við þessa framkvæmd styttist Hringvegurinn um 12 kílómetra. Leiðin á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði styttist enn frekar, eða um 14,6 kílómetra.

Ragnar Þór Ingólfsson, starfandi innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Gauti Árnason, formaður bæjarráðs Hornafjarðar, klipptu á borðann við hátíðlega athöfn á nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót að viðstöddum fjölda gesta. Kvennakór Hornafjarðar söng við vígsluna, en kórinn vakti athygli á mikilvægi breytinganna árið 2020 með því að syngja á öllum einbreiðum brúm í sýslunni.

„Með nýjum vegi og fjórum tvíbreiðum brúm yfir Djúpá, Hornafjarðarfljót, Hoffellsá og Bergá er stigið stórt skref í átt að auknu umferðaröryggi. Við erum að fækka hættulegum stöðum á leiðinni, jafna aðstæður og gera ferðalög öruggari fyrir alla,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson, starfandi innviðaráðherra, í ávarpi sínu og bætti við: „Þessi framkvæmd styrkir tengingar milli þéttbýlisstaða á svæðinu. Fólk getur sótt vinnu og þjónustu með auðveldari hætti, fyrirtæki geta unnið á stærra svæði og ný tækifæri skapast fyrir ferðaþjónustu og aðrar atvinnugreinar.“

Umfangsmikil mannvirkjagerð

Framkvæmdin er ein sú stærsta á svæðinu í áraraðir og felur í sér:

  • Tæpa 19 kílómetra af nýjum Hringvegi.
  • 9 kílómetra af tengdum hliðarvegum.
  • Fjórar nýjar tvíbreiðar brýr (samtals 468 metrar) yfir Djúpá, Hornafjarðarfljót, Hoffellsá og Bergá.
  • Nýtt hringtorg og áningarstað við Hafnarveg.

Með tilkomu nýju brúnna fækkar einbreiðum brúm á Hringveginum úr 29 niður í 26. Þetta fækkar slysahættum og jafnar akstursaðstæður.

Fyrsta stóra samvinnuverkefnið


Verkið er það fyrsta sinnar tegundar sem unnið er samkvæmt löggjöf um samgönguframkvæmdir þar sem ráðist er í samvinnuverkefni af þessari stærð á vegum Vegagerðarinnar.Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra leggur áherslu á mikilvægi þessa nýja rekstrarforms:

„Nýr Hringvegur um Hornafjörð er fyrsta samvinnuverkefnið af þessari stærð sem ráðist er í á vegum Vegagerðarinnar samkvæmt löggjöf um samgönguframkvæmdir. Veggjöld af umferðinni renna óskipt til nýs innviðafélags í eigu ríkisins og verður þeim varið í að viðhalda þessum tiltekna vegarkafla og fjármagna nýjar framkvæmdir. Með þessu nýja fyrirkomulagi verður hægt að flýta uppbyggingu samgöngumannvirkja um allt land til muna.“

Samið var við verktakafyrirtækið Ístak í júlí 2022 og hófust framkvæmdir það sama haust, en fyrstu áætlanir um verkið teygja sig aftur til ársins 2004.

Sjálfvirk innheimta veggjalda hefst 1. september


Veggjald verður innheimt á kaflanum frá og með 1. september næstkomandi. Gjaldtakan verður fyllilega rafræn og sjálfvirk í samræmi við lög um samvinnuverkefni, sem gera ráð fyrir að veggjöld standi undir að lágmarki 50% af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri og þróun mannvirkisins.Myndavélar munu lesa bílnúmer ökutækja sjálfkrafa og fletta þeim upp í ökutækjaskrá. Vegfarendur þurfa ekki að skrá sig eða stoppa til að greiða á veginum, heldur verða reikningar sendir beint í heimabanka um hver mánaðamót.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Björn berst við Sigríði Elsu
Innlent

Björn berst við Sigríði Elsu

Alls sóttu fimm um tvö störf
Innkalla vinsæl hrísgrjón vegna skordýra
Innlent

Innkalla vinsæl hrísgrjón vegna skordýra

Syndandi svört svín laða að sér ferðamenn
Myndir
Heimur

Syndandi svört svín laða að sér ferðamenn

Þóttist vera lögreglumaður til að auðvelda morðtilraun á fyrrverandi
Myndband
Heimur

Þóttist vera lögreglumaður til að auðvelda morðtilraun á fyrrverandi

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram
Landið

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram

Lögreglumaður aumur í eistunum eftir punggrip konu
Innlent

Lögreglumaður aumur í eistunum eftir punggrip konu

Guðmundur í Baggalút kominn með aðra nýja vinnu
Fólk

Guðmundur í Baggalút kominn með aðra nýja vinnu

Eins árs drengur lést eftir að hafa verið skilinn eftir í heitum bíl
Heimur

Eins árs drengur lést eftir að hafa verið skilinn eftir í heitum bíl

Hundur neitaði að verða kvöldmatur hlébarða
Myndband
Heimur

Hundur neitaði að verða kvöldmatur hlébarða

Grunaður morðingi ók stolnum lögreglubíl inn í einbýlishús
Myndband
Heimur

Grunaður morðingi ók stolnum lögreglubíl inn í einbýlishús

Vilja að Ísland slíti tengslunum við Ísrael
Innlent

Vilja að Ísland slíti tengslunum við Ísrael

Milljónafarangurinn komst ekki lengra en Leifsstöð
Innlent

Milljónafarangurinn komst ekki lengra en Leifsstöð

Hjónin hvergi sjáanleg en skuldin stendur eftir
Innlent

Hjónin hvergi sjáanleg en skuldin stendur eftir

Landið

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram
Landið

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram

Leyfin heimila allt að 10.000 tonna eldi
Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Innanlandsflug tekur breytingum
Landið

Innanlandsflug tekur breytingum

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli
Myndir
Landið

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum
Landið

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum

Loka auglýsingu