
Faxaflóahafnir hafa hafið forval fyrir lokað útboð á hönnun nýs Hafnarhúss við Viðeyjarsund í Sundahöfn. Með byggingunni er stefnt að því að sameina meginstarfsemi félagsins undir einu þaki og marka nýjan kafla í sögu þess.
Fyrirhugað er að nýja Hafnarhúsið verði um 3.000 fermetrar að stærð. Það mun hýsa bæði skrifstofu- og þjónustustarfsemi Faxaflóahafna ásamt sérhæfðri vinnu- og verkstæðisaðstöðu. Markmið verkefnisins er að skapa nútímalegt og sveigjanlegt starfsumhverfi sem eflir samstarf, styttir boðleiðir og styður við skilvirka starfsemi til framtíðar.
Starfsemin sameinuð á nýrri heimaslóð
Í dag dreifist starfsemi Faxaflóahafna víða um land og sjó, en aðsetur starfsfólks í höfuðborginni hefur að mestu verið skipt á milli tveggja staða: Hafnarhússins við Tryggvagötu og Bækistöðvarinnar við Fiskislóð á Granda. Með tilkomu nýja hússins verða þessar starfsstöðvar sameinaðar.
Nýjar höfuðstöðvar munu rísa við norðurenda Skarfabakka við Viðeyjarsund, í næsta nágrenni við farþegamiðstöðina Vör og dráttarbátaflota félagsins. Svæðið verður því ný heimaslóð félagsins, staðsett í sjálfri þungamiðju hafnarstarfseminnar.
Kveðja Tryggvagötuna
Breytingarnar marka tímamót þar sem Faxaflóahafnir hafa um langt skeið átt heimilisfang í hinu sögufræga Hafnarhúsi við Tryggvagötu, sem félagið hefur deilt með Listasafni Reykjavíkur og skapandi greinum. Faxaflóahafnir seldu Reykjavíkurborg eignarhlut sinn í því húsi í lok árs 2021.
Við hönnun á hinu nýja framtíðarhafnarhúsi verður rík áhersla lögð á vandaðan arkitektúr, gott starfsumhverfi, skýrt skipulag og umhverfisvænar lausnir, segir í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum.
