Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Ók fullur á tvöföldum hámarkshraða

Lögreglumaður að störfum
Lög­reglu­maður að störfum Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt vegna umferðar­lagabrota og annarra verkefna á höfuð­borgar­svæðinu. Fjöldi ökumanna var stöðvaður vegna hrað­aksturs, aksturs undir áhrifum og aksturs án ökuréttinda.

Eitt alvarlegasta tilvikið varð þegar lögregla stöðvaði ökumann sem grunaður var um ölvunar­akstur. Hann mældist á 154 kílómetra hraða þar sem hámarks­hraði er 80, var án ökuréttinda, ók ítrekað á milli akreina og gaf ekki stefnu­ljós.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna hrað­aksturs og nokkrir vegna farsíma­notkunar við akstur. Einn ökumaður var kærður fyrir að aka á 62 kílómetra hraða þar sem hámarks­hraði er 40. Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni ljós­lausrar bifreiðar.

Nokkrir ökumenn voru jafnframt grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Lögregla hafði meðal annars afskipti af tveimur ökumönnum bifhjóla sem báðir voru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Bifhjólin voru ótryggð og var annar ökumaðurinn réttinda­laus en hinn bráðabirgða­sviptur ökuréttindum. Hjólin voru fjarlægð með dráttar­bifreið.

Eftirför var gerð að ungmenni á mótorkross­hjóli og var málið afgreitt með aðkomu foreldra.

Í öðru tilviki var vespu ekið utan í bifreið. Ökumaður vespunnar, sem var án ökuréttinda, fékk aðhlynningu.

Þá óskaði starfs­fólk veitinga­staðar eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem hafði neytt matar og drykkja en neitaði að greiða reikninginn. Einnig var tilkynnt um innbrot í geymslu í fjölbýlis­húsi.

Loks varð umferðar­óhapp þar sem bifreið varð óökufær, en engin slys urðu á fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning