
Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Háskóla Íslands (HÍ) og hefur hann þegar hafið störf. Örn tekur við keflinu af Guðmundi Ragnari Jónssyni, sem lætur af störfum sökum aldurs eftir áramót. Til að tryggja hnökralausa yfirfærslu á hinu umfangsmikla og flókna hlutverki munu þeir starfa saman næstu mánuði.
Viðamikil reynsla úr atvinnulífinu
Örn býr yfir 25 ára reynslu af stjórnunar- og leiðtogastörfum innan stórra skipulagsheilda. Hann var framkvæmdastjóri COWI Ísland ehf. á árunum 2023–2024 og þar á undan framkvæmdastjóri Mannvits hf. árin 2018–2023, þar sem hann gegndi einnig starfi fjármálastjóra árin 2015–2018. Þá var hann aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Kaupþingi hf. á árunum 2009–2015.
Samhliða þessu situr Örn í bankaráði Landsbankans, þar sem hann hefur stýrt endurskoðunar- og áhættunefndum, og er stjórnarformaður Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. Hann útskrifaðist með Cand.oecon. próf frá Háskóla Íslands árið 1996 og lauk meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School árið 1998.
Leiðir fjögur stór stoðsvið skólans
Í starfi sínu sem framkvæmdastjóri mun Örn leiða hluta sameiginlegrar stjórnsýslu HÍ í umboði rektors. Undir verksvið hans heyrir yfirumsjón með fjórum lykilsviðum:
- Fjármálasviði
- Framkvæmda- og tæknisviði
- Mannauðssviði
- Upplýsingatæknisviði
Hlakka til samstarfsins
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, fagnar ráðningunni og segir skólann heppinn að fá jafn reynslumikinn stjórnanda til liðs við sig. „Ég hlakka til að vinna með Erni að því að styrkja rekstur háskólans og gera góðan vinnustað enn betri,“ segir Silja Bára.
Örn segir það mikinn heiður að ganga til liðs við skólann. „Ég hlakka til að kynnast öflugu starfsfólki skólans og vinna með því að áframhaldandi þróun skólans, traustum rekstri og góðri þjónustu við háskólasamfélagið,“ segir Örn af þessu tilefni.
